Valhöll fasteignasala kynnir: fallega og vel skipulagða 77,1 fm, þriggja herbergja endaíbúð á 2. hæð við Eskiás 6, Garðabæ. Byggingarár hússin er 2025. Sér inngangur af stigapalli. Falleg og rúmgóð eldhúsinnrétting. Tvö svefnherbergi og geymsla innan íbúðarinnar. Baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Góðar svalir sem snúa í suðvestur. Fallegt parket á allri íbúðinni og baðherbergi flísalagt.
Eignin er afhent við undirritun kaupsamnings.
Bókið skoðun hjá Óskari H. Bjarnasen fasteignasala / lögfræðingi í gegnum netfangið oskar@valholl.is eða í síma 691-1931.
Nánari lýsing: Forstofa: parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: parket á gólfi, rúmgóð "U" laga eldhúsinnrétting frá NOBILIA/GKS með innbygðum tækjum, uppþvottavél, ísskáp og frysti. Eldhústæki, blástursofn, spanhelluborð og innbyggður ísskápur frá Whirlpool. Góð vinnuaðstöðu og gott skápapláss er í eldhúsi.
Stofa- og borðstofa: rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur, frá stofu er útgengt út á svalir sem snúa í suðvestur.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, "walk inn" sturta, handlaug með innréttingu og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: parket á gólfi og fataskápar. Gluggar á tvo vegu.
Barnaherbergi: parket á gólfi og fataskápar.
Geymsla: parket á gólfi.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign á jarðhæð. Sameiginleg bílastæði fyrir utan húsið með rafhleðslustöðvum og sameiginlegur skjólgóður inngarður með leiktækjum fyrir miðju.
Eiginin er fræbærlega staðsett nærri miðbæjarkjarna Garðabæjar og í göngufæri við skóla, verslanir íþróttahús og sundlaug Garðabæjar. Nánari upplýsingar veitir:Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögfræðingur í síma 691-1931 eða í tölvupósti á netfangið oskar@valholl.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.