VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu, íbúð á jarðhæð, við Edennmörk 5, 810 Hveragerði.Eignin er samtals 80 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Íbúðin er nýleg, fjögurra herbergja á jarðhæð með sérinngangi.Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, þrjú svefnherbergi, baðher... Sýna meira
VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu, íbúð á jarðhæð, við Edennmörk 5, 810 Hveragerði.Eignin er samtals 80 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Íbúðin er nýleg, fjögurra herbergja á jarðhæð með sérinngangi.Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, ásamt geymslu, hjóla- og vagnageymslu.Nánari lýsing:Gengið er beint inn í eignina af jarðhæð.Forstofan er opin og björt með flísum á gólfi og leiðir þig inní aðalrými íbúðarinnar.Í opnu rými er stofa, borðstofa og eldhús með útgengi út á lóð.Eldhúsið er sérsmíðað með vönduðum heimilistækjum af AEG gerð frá Ormsson, blástursofn, keramik helluborð með fjórum spansuðuhellum og innbyggð uppþvottavél.Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, hjónaherbergi sem er bjart og rúmgott með góðum skápum. Barnaherbergin eru tvö og í þeim báðum eru skápar.Baðherbergið er með flísum á gólfi og nettri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og stórri og góðri "walk in" sturtu. Vélrænt útsog. Vegghengt salerni , innrétting með handlaug og speglaskápur. Gólfhiti er á baðherbergi.Húsið er byggt árið 2022 og er aðalverktaki Já verk. Edenmörk 5 er þriggja hæða fjölbýli ásamt geymslum og hjóla/vagnageymslu í kjallara. Við húsið er utanáliggjandi lyfta sem tengist svalagangi sem er við húsið frá kjallara og uppúr.Íbúðinni fylgir 4,8 m² geymsla í kjallara sem er inní fermetratölu eignar.Eignin er á svokölluðum Edenreit, miðsvæðis í Hveragerði. Lóð og bílstæði frágengin og snyrtileg.Stutt í skóla, verslun og almenna þjónustu.Miðsvæðis er leiksvæði og sælureitur með litlum gróðurhúsum sem íbúar geta fengið að njóta góðs af.Nánari upplýsingar veita:Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur .Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur . Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.