Lind fasteignasala kynnir glæsilega og vandaða 111 fm
4ra herbergja íbúð í nýlegu húsi í
Vogahverfi Reykjavíkur. Vandaðar ítalskar innréttingar, Bjart alrými með útgang á 22fm
verönd með heitum
potti, þrjú rúmgóð
svefnherbergi,
þvottahús innan íbúðar, tvær
geymslur, sér stæði í
bílageymslu.Nánari lýsing eignar: komið er inn í góðan
forstofugang með fataskáp. Alrými með
eldhúsi og
stofu með útgangi á 22 fm
verönd til austurs með
heitum potti að auki eru 8,4 fm
yfirbyggðar svalir til suðausturs. Í eldhúsi eru vandaðar
Gili Creation innrétting með innbyggðum vönduðum
AEG tækjum m.a. ofn í vinnuhæð, eyjuháfur yfir helluborði og
Silestone kvarststeinn á borðum.
Svefnherbergin eru þrjú, rúmgóð með fataskápum.
Baðherbergi með walk in sturtu, reyklitað sturtugler, falleg innrétting, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf. Gólfsíðir gluggar. Gólfefni á íbúðinni er vínylparket á öllum rýmum nema Gili Creation flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Sér
þvotthús með innréttingu og vaski.
Geymsla með hillum innan íbúðar og að auki er sér 4,2 fm
geymsla í sameign með hillum. Sameignin er einstaklega snyrtileg. Í sameign er hjóla og vagnageymsla. Sér bílastæði í bílageymslu, þar er lagt fyrir hleðslustöð.
Húsið er staðsteypt, einagrað að utan og klætt og er því viðhaldslítið. Ofan á bílageymslu er sameignlegur
garður með gróðri og leiktækjum. Lóðin er með hellulögðum stéttum, sameiginlegum fallegum garði með leiktækjum. Lokanlegu hliði hefur verið komið fyrir við útgang garðsins, sem gerir hann einstaklega
barnvænan og öruggan. Heitur pottur er
Husky rafmagnspottur frá Arctic Spas. Rafmagnskostnaður vegna pottsins er mjög lítill. Snjalllásakerfi frá
Brafa hefur verið sett upp fyrir íbúðina, bílskúrshurð, útihurð inn í sameign og inngang að bílastæðum.
Ragnar Sigurðsson innanhúsarkitekt sá um hönnun en í íbúðinni eru innréttingar úr
reyktri melamin eik frá ítalska Gili creations.
Nánari upplýsingar veitir:
Albert Bjarni Úlfarsson fasteignasali // 8210626 // ALBERT@FASTLIND.IS Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar.
Með því að framvísa kortinu færð þú
30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN.