Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna: Bergþórugata 29, 101 Reykjavík - eign merkt 01-0101- Afar smekkleg samtals 71,5 m
2 eign í miðborginni sem skiptist í góða tveggja herbergja 48,8 m
2 íbúð á 1. hæð, ásamt 19,4 m
2 geymslu í kjallara sem útbúin hefur verið sem herbergi. Eigninni fylgir einnig 3,3 m
2 geymsla og hlutdeild í baðherbergi í kjallara sem er í eigu tveggja íbúða í húsinu. Frábær staðsetning í 101, í næsta nágrenni við Sundhöllina og Tækniskólann.
Skipulag: anddyri, hol, eldhús, baðherbergi, stofa, herbergi, tvær geymslur.
Nánari lýsing:Anddyri: Með parketi á gólfi.
Eldhús: flísar á gólfi, innrétting á heilum vegg með skápum ofan og neðan borðplötu, lýsing í efri skápum, bakaraofn og helluborð með viftu fyrir ofan. Pláss er fyrir eldhúsborð.
Stofa: Með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt hólf í gólf, sturtuklefi, salerni og handlaug. Lítill skápur undir handlaug.
Annað: Í kjallara eru tvær geymslur sem fylgja eigninni. Önnur þeirra er 19,4 m
2 að stærð og hefur verið útbúin sem herbergi og nýtt til útleigu. Hin geymslan er 3,3 m
2. Eigninni fylgir jafnframt 58,26% hlutdeild í baðherbergi í kjallara sem aðeins tvær íbúðir hússins hafa aðgang að. Eignin var endurnýjuð að miklu leyti árið 2016. Var þá m.a. skipt um eldhús- og baðinnréttingu, innihurðar og parket á íbúðinni. Veggir voru heilsparslaðir og málaðir ásamt því að skipt var um tengla og rofa. Sameiginlegur garðskúr er í bakgarði hússins.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur hjá M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is
Sjá einnig:fastborg.is/Smelltu hér til að fylgjast með mér á FacebookSmelltu hér til að fylgja mér á InstagramÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.
BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði