Domusnova hefur fengið í einkasölu bjarta og góða 4ra herbergja fjölskylduíbúð með stórum herbergjum á vinsælum stað við Baugakór. Íbúðin er vel skipulögð þannig að rýmið nýtist vel. Svalir eru í suður og eru ágætlega stórar. Lyfta er í húsinu og gott bílskýli. Stutt er í alla þjónustu, leikskóla, s... Sýna meira
Domusnova hefur fengið í einkasölu bjarta og góða 4ra herbergja fjölskylduíbúð með stórum herbergjum á vinsælum stað við Baugakór. Íbúðin er vel skipulögð þannig að rýmið nýtist vel. Svalir eru í suður og eru ágætlega stórar. Lyfta er í húsinu og gott bílskýli. Stutt er í alla þjónustu, leikskóla, skóla, verslanir og afþreyingu s.s. golf og líkamsrækt auk heilsugæslu. Þá er örstutt í Elliðavatn og Vífilstaðavatn sem eru frábær útivistarsvæði. Á sameiginlegu leiksvæði rétt við blokkina eru rólur og klifurgrind. Stæði í bílskýli fylgir íbúðinni. Nánari lýsing:Aðkoman að húsinu er um upphitað bílaplan og er lyfta í anddyrinu, sem fer niður í bílgeymslu. Gengið er inní íbúðina af svölum sem eru að mestu yfirbyggðar. Þegar inní íbúðina er komið eru barnaherbergi sitt til hvorrar handar en stofa og eldhús beint af augum. Hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús eru til hægri við eldhús og stofu. Gengið er útá svalirnar sem eru breiðar og góðar útúr stofunni.Stofa og borðstofa eru í einu rými með viðarparketi og er þaðan gengið útá svalir sem snúa að mestu mót suðri.Eldhús er með flísum á gólfi og er þar ný innrétting.Hjónaherbergi er bjart og rúmgott með parketi á gólfi og góðum skápum.Barnaherbergin eru tvö og bæði ágætlega stór með parketi á gólfum og eru skápar í þeim báðum.Baðherbergi er með flísum á gólfi, flísalagt nánast í hólf og gólf og eru þar ný blöndunartæki í handlaug, hornbaðkar.Þvottahús er inní íbúðinni og er með flísum á gólfi, vaskur og ný innrétting. Forstofan er með flísum á gólfi og þar eru stór skápur og skógeymsla.Í sameign er geymsla, hjólageymsla og bílskýli sem virðist vel um gengið og líta vel út, eitt bílastæði fylgir íbúðinni. Þvottaaðstaða err í bílskýli.Sameign lítur vel út og er vel um gengin sem og bílgeymslan. Snjóbræðslukerfi er í bílaplani.Stutt er í alla þjónustu úr Baugakórnum, leikskólar eru nálægir svo og skóli, íþróttahús og verslanir. Örstutt er í Kórinn íþróttamiðstöð, Salalaug, líkamsrækt, apótek, heilsugæslu, hesthúsahverfi, golfvöll GKG og útivistarsvæði í Heiðmörk. Þá eru bæði Elliða- og Vifilstaðavatn í göngufjarlægð sem eru frábær útivistarsvæði.Smellið hér til að fá söluyfirlit sentNánari upplýsingar veita:Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.