Húsasalan og Jón Örn Kristinsson löggiltur fasteignasali kynna:Fallegt og talsvert endurnýjað endaraðhús á þessum vinsæla stað. Sér inngangur, stór nýleg suðurverönd með innb. geymslum og stæði í bílskýli.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og skápum.
Gesta salerni með flísum.
Eldhúsið er með korkflísum á gólfi, nýlegri hvítri innréttingu og borðkrók.
Vinnuherbergi með parketi og glugga.
Góð stofa og borðstofa með góðum gluggum og útgang út á stórann nýlegan pall til suðurs. Við enda pallsins eru góðar geymslur fyrir grilið, útihúsgögnin, trampolínið o.fl.
Stíginn upp á efri hæðina er teppalagður fallegu ljósu teppi, stór gluggi sem gerir holið sérlega bjart.
Efri hæð:Komið er upp á pall með parketi og skápum auk þess sem þar er loftlúga upp í stórt risherbergi sem ekki telst í fermetrafjölda, það hefur verið nýtt sem m.a. sjónvarpsherbergi eða svefnherbergi en er í dag nýtt sem geymsla. Þar er parket á gólfi, gaflgluggi.
Gott hjónaherbergi með parketi og skápum.
Tvö barnaherbergi með parketi og skápum.
Baðherbergið er flísalagt, baðkar með sturtu, og lagt fyrir þvottavél.
2025 var sett nýtt járn á þakið og nýjir þakgluggar.
2025 Nýtt teppi á stiga.
2022 Eldhús endurnýjað.
2020 Gestasalerni endurnýjað.
2020 og til dagsins í dag er búið að endurnýja nær allt gler í gluggum.
Eignin Álakvísl 65 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-3706, birt stærð 146.0 fm.
Nánari upplýsingar veitir Jón Örn Kristinsson, í síma 898-4588, tölvupóstur jon@husasalan.is.