Valhöll fasteignasala kynnir 3ja herbergja íbúð á efstu hæð með góðu útsýni á Akurvöllum 1 á Völlunum í Hafnarfirði. Íbúðin er skráð 90,8 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin er 83,7 fm og geymslan 7,1 fm. Fjórar íbúðir eru á hæð og er því allar íbúðir horníbúðir.Íbúðin skiptist í anddyri, sto... Sýna meira
Valhöll fasteignasala kynnir 3ja herbergja íbúð á efstu hæð með góðu útsýni á Akurvöllum 1 á Völlunum í Hafnarfirði. Íbúðin er skráð 90,8 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin er 83,7 fm og geymslan 7,1 fm. Fjórar íbúðir eru á hæð og er því allar íbúðir horníbúðir.Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla á jarðhæð.Nánari lýsing:Anddyri: með fataskáp og flísum á gólfi.Eldhús: með ljósri innréttingu, stæði fyrir uppþvottavél og flísum á gólfi.Stofa: með parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðar svalir.Baðherbergi: með innréttingu undir vask og skáp, upphengdu salerni, sturtuklefa, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum.Þvottahús með vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.Tvö svefnherbergi: bæði rúmgóð með fataskápum og parketi á gólfi.Geymsla: 7,1 fm sérgeymsla í kjallara.Hjóla- og vagnageymsla: sameiginlega í kjallara. Mynddyrasími er í íbúðinni. Stutt í alla þjónustu, s.s. skóla, sund, íþróttaaðstöðu og verslanir. Gangur og sameign snyrtileg.Nánari upplýsingar veitir:Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða á netfanginu Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.