Fasteignasalan Hvammur 466 1600Víðilundur 4 íbúð 301 - Mjög mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 3.hæð/efstu í fjölbýli á Brekkunni - 96,8 m²
** Íbúðin er björt með frábæru útsýni **Eignin skiptist í forstofu, fataherbergi, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, sér geymslu í kjallara og hlutdeild í stórri sameiginlegri geymslu.
Forstofa er með ljósu harðparketi á gólfi.
Fataherbergi er til hliðar úr forstofunni og er rennihurð inn í það.
Eldhús var endurnýjað árið 2013. Flísar á gólfi og hvít innrétting með viðar borðplötu. Eins borðplata er veggföst undir glugganum svo hægt er að sitja þar við.
Stofan er mjög rúmgóð og þar er ljóst harðparket á gólfi, stór vestur gluggi og hurð út á steyptar vestur svalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og í hjónaherberginu er stór fataskápur. Rennihurð er inn í barnaherbergið.
Baðherbergi var endurnýjað fyrir um 10 árum. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur, wc, handklæðaofn og walk-in sturta.
Þvottahús er inn af eldhúsinu með flísum á gólfi, vask og opnanlegum glugga.
Í kjallaranum er
sér geymsla með lökkuðu gólfi og hillum og önnur rúmgóð sameiginleg geymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallaranum.
Annað* Eignin var mikið endurnýjuð árið 2013.
* Mynddyrasími.
* Ofnkranar voru endurnýjaðir árið 2025.
* Nýtt harðparket var lagt á íbúðina árið 2025 og settar upp nýjar hvítar innihurðar.
* Búið er að endurnýja glugga í þvottahúsi, eldhús og báðum svefnherbergjum og gler í stofuglugganum.
* Búið er að taka inn ljósleiðara.
* Örstutt í ýmsa þjónustu, verslun, apótek, sundlaug o.fl. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.