Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: virkilega fallegt, vel skipulagt 138,5 fm parhús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr á frábærum stað við Ugluflöt 1 á Hvanneyri í Borgarbyggð. Hús í "sveitasælunni" með 494 fm lóð.Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 113,5 fm auk 25 fm bílskúrs. Bókið einkaskoðunStaðsett í ört stækkandi þéttbýliskjarna á Hvanneyri með mikið útsýni og mikla nálgun við náttúruna.
Um 285 manns* búa á Hvanneyri allt árið en bæjarbúar fara yfir 600+ þegar Landbúnaðarháskólinn er í gangi.
Leikskólinn Andabær og Grunnskól fyrir 1-5 bekk eru í hverfinu. Stutt á strætisvagnastöð.
Á Hvanneyri gerast góðir hlutir, börnin leika sér úti, nágrannar spjalla saman. Í göngu ferð um bæinn getur þú rekist á hesta, beljur, hænur, hunda og ketti. Einstakt fuglalíf er á Hvanneyri og glæsileg náttúra. Yndislegt sveitalíf allt í kring.Nánari lýsing. Nýbygging 2026Forstofan er rúmgóð með flísalögðu gólfi.
Stofa og
Eldhús mynda eitt stórt alrým
Eldhús með fallegr hvítri innréttingu með, ofn í vinnuhæð, spanhelluborð, innbyggður ísskápur, parket á gólfi
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, "walk-in sturta", innbyggð blöndurnaræki hjá Hans Grohe, falleg innrétting, upphengt salerni
Hjónaherbergi með parketi á gólfi.
2 x Barnaherbergi með parketi á gólfum.
Þvottahús er innaf svefnherbergisgangi með flísalögðu gólfi og með skolvaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr með heitt og kalt vatn. gólf málað með epoxy málningu.
Fljótandi quick stepp harðparket á herbergjum og alrými, Marazzi flísar frá Harðviðarval á votrýmum.
Clipso hljóðvistardúkur frá Enso í alrými og svefnherbergjum
Ringo innihurðir frá Birgisson
Gólfhiti er í öllu húsinu með Danfoss stafrænni stýringu. Möguleiki á APP tengingu
Ugluflöt er á Hvanneyri í ört vaxandi byggðarkjarna í Borgarbyggð, Hvanneyri er staðsett í ca. 10 mínútna akstursfjarlægð frá Borgarnesi.
Á Hvanneyri er stór og fallegur leikskóli sem gengur undir nafninu Andabær og eru í honum þrjár deildir, Goðheimar, Hulduheimar og Álfheimar. Grunnskóli er á Hvanneyri og fer fram kennsla fyrir 1-5 bekk en 6-10 bekk fer fram á Kleppjárnsreykjaskóla og er skólabíl fyrir þá nemendur. Menntaskóli er einungis um 10mín frá en hann er staðsettur í Borgarnesi. Landbúnaðarháskóli Íslands er lítill háskóli sem einnig markar honum sérstöðu.Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.