Miklaborg kynnir: Það er eitthvað svo óvenjulega einstakt við þessa lóð, jaðarlóð með kyrrð og frið í deiliskipulögðu sumarhúsahverfi skammt frá Laugarvatni, Reykholti, Friðheimum svo ekki sé talað um alfaraleið gullna hringsins. Gullmoli á suðurlandi með víðsýnt útsýni. Lóðin er 5398 fm leigulóð með leigusamningi til 50 ára frá 2013. Húsið er skráð 40,1 fm hjá fasteignaskrá en til viðbótar er ca. 9 fm geymsla og svefnloft. Smíði hússins virðist góð og er pallur umhverfis húsið með skjólgirðingu og heitum potti. Frábært kauptækifæri.
Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 6955520 eða jon@miklaborg.is
Sjá kynningu um eignina hér https://www.littlebluehouseiceland.com/video-tour og staðsetningu hér https://ja.is/kort/?type=aerial&page=1&q=tj%C3%B6rn%20l%C3%B3%C3%B0%2027&x=427277&y=413682&nz=17.97
Nýlegt harðparket er á gólfum en komið er inn í forstofu með fatahengi. Tvö svefnherbergi annað með kojum og hitt rúmar tvíbreitt rúm. Eldhús og stofa í opnu björtu rými þaðan sem er útgengt á pall. Baðherbergi er með sturtuklefa, skápainnréttingu undur handlaug og flísalagt gólf. Svefnloft er til viðbótar við uppgefna fermetra og þar gætu 4-6 manns gist en þar er opnanlegt fag.
Inntaksgeymsla er til hliðar við aðalinngan bústaðar og einnig er ca. 9 fm verkfærageymsla þar sem mætti t.d. koma fyrir þvottavél.
Lóðarleiga er rúmlega 100 þús á ári og kostnaður vegna hitaveitu ca. 10 þús á mánuði. Lóðarleigusamningur gildir í 50 ár frá 2013.
Staðsetning hússins er góð, stutt á marga þekktar perlur suðurlands ásamt golfvöllum Kiðjabergs, Öndverðarness og Flúða. Opinbert leyndarmál sem bíður eftir kaupanda sem vill njóta og lifa.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu


















| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 26.07.2026 Nánar | 40,1 m² | 710.723 kr. | 28.500.000 kr. |
| 15.07.2026 Nánar | 40,1 m² | 710.723 kr. | 28.500.000 kr. |
| 06.07.2026 Nánar | 40,1 m² | 710.723 kr. | 28.500.000 kr. |
| 02.07.2026 Nánar | 40,1 m² | 710.723 kr. | 28.500.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 3. desember 2018 | 13.500.000 kr. |