RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með glæsilegu útsýni yfir borgina. Íbúðin er í fjórbýli á Snorrabraut en einnig eru bílastæði og gott aðgengi að eigninni frá Auðarstræti. Íbúðin sjálf er 83.4 m² og sérgeymsla 2.1 m² er í kjallaranum.
Nánari lýsing: Stigagangurinn er bjartur og er fatahengi á stigapallinum við innganginn í íbúðina.
Hol tengir saman rýmin í íbúðinni.
Eldhúsið er nýlega endurnýjað með tækjum og sérsmíðaðri innréttingu frá GKS. Borðkrókur er innan eldhússins og var eldhúsbekkurinn einnig sérsmíðaður með geymsluplássi. Allt rafmagn var endurnýjað þar á sama tíma. Nýlegur dúkur er á gólfi.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp.
Hjónaherbergið er rúmgott með stórum skáp og parketi á gólfi. Úttgengt er út á svalir sem snú í átt að Klambratúni, suðausturátt
Stofurnar eru báðar með glugga í tvær áttir og parket á gólfi. Auðvelt að gera aðra þeirra að þriðja svefnherberginu.
Baðherbergið er flísalagt með upphengdu klósetti og baðkari með sturtuaðstöðu. Gluggi með opnanlegu fagi er á baðherberginu.
Sameiginlegt
þvottahús er í kjallaranum.
Sérgeymsla er úti undir stiganum.
Viðhald síðustu ár:2024: Múrviðgerðir á geymslugang.
2023: Þakjárn var endurnýjað.
2014: Húsið var múrviðgert og þakkantur lagaður.
Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.