LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / kynna:Um er að ræða vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á 1.hæð á góðum stað í Norðurmýri í Reykjavík.Tvö stór svefnherbergi, stofa, mjög rúmgott og opið eldhús og bað. Töluvert endurnýjuð íbúð að innan og breytt skipu... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / kynna:Um er að ræða vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á 1.hæð á góðum stað í Norðurmýri í Reykjavík.Tvö stór svefnherbergi, stofa, mjög rúmgott og opið eldhús og bað. Töluvert endurnýjuð íbúð að innan og breytt skipulag. Birt stærð skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 93,9 m2 og er íbúð merkt 01-01-01.ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.Nánari upplýsingar um eign:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.Eignin skiptist í:Sameiginlegur inngangur með íbúðum á efri hæðum, forstofu/hol, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, sérgeymslu í kjallara og sameiginlegt þvottaherbergi.Nánari lýsing á eign:Komið er inn í sameiginlegan stigagang og úr honum er gengið inn í íbúð.Forstofa/hol í miðju íbúðar þaðan sem gengið er í önnur rými íbúðarinnar, skápur er í forstofurýminu.Eldhúsið er mjög rúmgott og er að hluta endurnýjað, snyrtileg eldri innrétting með efri og neðri skápum og eru flísar á vegg milli skápa, ísskápur og uppþvottavél í eldhúsi sem að fylgir með í kaupum, gott pláss fyrir borðkrók.Hjónaherbergi er mjög rúmgott, stór fataskápur. Útgengt út á suður-svalir úr herbergi.Tvö góð herbergi sem að áður voru tvær samliggjandi stofur en búið er að loka á milli með léttum vegg sem auðvelt er að fjarlægja.Baðherbergið er með flísum í hólf og gólf. Sturtuklefi og upphengt wc, góð innrétting og handklæðaofn.Sérgeymsla er í kjallara sem og sameiginlegt þvottahús. Útgengt út í sameiginlegan garð úr þvottahúsi.Gólfefni: Nýlegt harðparket og flísar á baðherbergi.Búið er að skipta um rafmagn í íbúð að hluta og rafmagnstöflu í sameign.Ofnalagnir eru endurnýjaðar og ofnum lyft frá gólfi.Stór sameiginlegur garður.Þetta er virkilega góð björt og rúmgóð þriggja til fjögurra herbergja íbúð miðsvæðis í höfuðborginni sem hefur verið töluvert endurnýjuð að innan. -Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarPanta FRÍTT söluverðmat