Íbúð
Fjögurra herbergja íbúð í sameign. Skiptist í: Forstofu, eldhús og stofu/borðstofu, svalir út frá stofu, hjónaherbergi með fatakróki, tvö barnaherbergi, geymsla og þvottaherbergi innan íbúðar. Staðsett í lokuðum botnlanga í Fossvogi.
Stofa
Opin og björt stofa samliggjandi borðstofu. Með parketi á gólfi og stórum gluggum með sólvarnargleri.
Eldhús
Opið eldhús með eyju, granít borðplötu, vönduðu helluborði og viftu. Gott skápapláss og parket á gólfum. Uppþvottavél fylgir. Í sameiginlegu rými með stofu/borðstofu.
Svefnherbergi
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi og góðu fataherbergi/króki. Barnaherbergi: Tvö herbergi með parketi á gólfum og fataskápi.
Baðherbergi
Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og handlaug með góðu skápaplássi. Endurnýjað 2020 með walk-in sturtu, nýjum handklæðaofni, nýrri rafmagnsviftu í lofttúðu, nýrri innrétting og nýju blöndunartæki.
Þvottahús
Þvottaherbergi innan íbúðar. Sérmerktur tengill/stæði fyrir þvottavél/þurrkara í þvottahúsi í sameign.
Geymsla
Geymsla á jarðhæð í sameign (8,6 m²). Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Svalir/þak
Mjög rúmgóðar svalir út frá stofu með glæsilegu útsýni til suðurs. Með nýrri svalarhurð og sólvarnargleri (2025).
Félagssvæði
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Önnur herbergi
Forstofa með fataskápi, panel á vegg og parketi á gólfi.
Tæki
Uppþvottavél fylgir í eldhúsi.
Svæði
Staðsett innst í lokuðum botnlanga í rólegu og eftirsóknaverðu hverfi í Fossvogi. Fallegar gönguleiðir í allar áttir. Stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslunarmiðstöðina Kringluna, Skeifuna, Læknavaktina Austurveri og alla helstu þjónustu.