Íbúð
Fjögurra herbergja íbúð merkt 202. Skiptist í: Forstofu, eldhús og stofu/borðstofu í sameiginlegu rými, svalir út frá stofu, hjónaherbergi með fatakróki, tvö barnaherbergi, geymsla og þvottaherbergi. Sameignin býður upp á sérgeymslu íbúðarinnar, hjóla- og vagnageymslur.
Stofa
Opin og björt stofa samliggjandi borðstofu. Með partketi á gólfi og stórum gluggum með sólvarnargleri. Opinn aðgangur að eldhúsi. Gengið út á svalir frá stofunni.
Eldhús
Opinn að stofu/borðstofu. Með eyju, granít borðplötu, vönduðu helluborði og viftu. Gott skápapláss og parket á gólfum. Uppþvottavél fylgir.
Svefnherbergi
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með partketi á gólfi og góðu fataherbergi/króki. Tvö barnaherbergi: Parketlögð með fataskápi.
Baðherbergi
Flísalagt með sturtu, upphengdu salerni, handlaug og góðu skápaplássi. Endurnýjað 2020 með "walk in" sturtu, nýjum handklæðaofni, nýrri rafmagnsviftu í lofttúðu, nýrri innréttingu og blöndunartæki.
Þvottahús
Þvottahús innan íbúðar. Einnig er sérmerktur tengill/stæði fyrir þvottavél/þurrkara í þvottahúsi í sameign.
Geymsla
Forstofa með fataskápi. Geymsla innan íbúðar. Sérgeymsla íbúðarinnar á jarðhæð í sameign (8,6 m²). Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Svalir/þak
Mjög rúmgóðar svalir aðgengilegar frá stofu. Skarta glæsilegu útsýni til suðurs. Með nýrri svalarhurð og sólvarnargleri (2025).
Félagssvæði
Sameign býður upp á sérgeymslu, hjóla- og vagnageymslu.
Önnur herbergi
Fataherbergi/króki frá hjónaherberginu.
Tæki
Uppþvottavél fylgir í eldhúsi. Nýr handklæðaofn í baðherbergi.
Svæði
Staðsett innst í lokuðum botnlanga í rólegu og eftirsóknaverðu hverfi í Fossvogi. Fallegar gönguleiðir í allar áttir. Stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslunarmiðstöðina Kringluna, Skeifuna, Læknavaktina Austurveri og alla helstu þjónustu.