Miklaborg kynnir: Til sölu glæsileg og fallega hönnuð nýleg 2ja herbergja endaíbúð í lyftuhúsi við Skipholt 11-13. Íbúðin er á 3. hæð merkt 301 og er glæsilega innréttuð með vönduðum frágangi. Stærð íbúðar með geymslu er 81,7 fm auk þess eru 9,2 fm suðursvalir út frá stofu með góðu útsýni.
Bílastæði á baklóð og miðbærinn í göngufæri.
Íbúðin skiptist í forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er gangur, mikið skápum og innbyggðu vinnuborði í innréttingu. Stofa og eldhús eru í einu rými sem snúa í suður og úr því rými er gengið út á góðar suðursvalir sem eru 9,2 fm að stærð. Glæsilegt eldhús með miklu skápaplássi, innfelldri lýsingu undir skápum og öll raftæki fylgja með (helluborð, vifta,, ofn, tvískiptur ísskápur, uppþvottavél). Baðherbergi er vandað og flísalagt að mestu, góð innrétting og upphengt salerni. Sturtuklefi með glervegg og innbyggðum tækjum. Handklæðaofn og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara eru á baðherberginu og einnig er þar opnanlegur gluggi. Hjónaherbergi með fataskápum á einum vegg. Á öllum gólfum nema á baðherbergi og forstofu er harðparket en fliísar á forstofu og baðherbergi. Á jarðhæð er sér 9,1 fm geymsla sem fylgir íbúðinni. Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og snyrting á jarðhæð.
Húsið var endurbyggt frá grunni og stækkað árið 2015 og er þessi hluti hússins nýr síðan þá.
Upplýsingablað eiganda um ástand eignarninnar og húsfélagsyfirlýskngu er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.
Hér er um að ræða fallega og vandaða íbúð á besta stað í Reykjavík. Stutt er í verslun Bónus á jarðhæð hússins og miðbærinn í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu














| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
0301 ![]() | 2 | 81,70 m² | 69.900.000 kr. 11. maí 2026 | 42.900.000 kr. 7. september 2019 |
0208 | - | - | - | 43.900.000 kr. 24. maí 2018 |
| 2 | 77,20 m² | 69.900.000 kr. 12. október 2025 | 69.400.000 kr. 15. desember 2025 |
| - | - | - | 42.500.000 kr. 17. september 2018 |
| - | - | - | 43.500.000 kr. 21. apríl 2020 |
| - | - | - | 43.000.000 kr. 19. desember 2018 |
| - | - | - | 42.900.000 kr. 23. október 2018 |
0306 | - | - | - | 43.000.000 kr. 12. febrúar 2020 |
| - | - | - | 68.800.000 kr. 29. maí 2017 |
| - | - | - | 42.000.000 kr. 22. apríl 2020 |
| - | - | - | 42.900.000 kr. 24. júlí 2019 |
| - | - | - | 46.200.000 kr. 18. mars 2021 |
| - | - | - | 78.000.000 kr. 27. september 2020 |
| - | - | - | 42.500.000 kr. 2. október 2019 |
0202 ![]() | 2 | 76,90 m² | 46.900.000 kr. 8. febrúar 2021 | 49.400.000 kr. 1. nóvember 2021 |
0404 | - | - | - | 85.200.000 kr. 19. september 2019 |
0204 | - | - | - | 43.500.000 kr. 25. nóvember 2019 |
| 2 | 81,70 m² | 69.900.000 kr. 19. janúar 2026 | 69.500.000 kr. 16. apríl 2026 |
| 2 | 81,70 m² | 79.900.000 kr. 6. janúar 2025 | 45.900.000 kr. 15. mars 2018 |
0403 ![]() | 3 | 142,70 m² | 129.000.000 kr. 9. maí 2026 | 62.000.000 kr. 29. apríl 2016 |