RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna: Glæsilega 4ra herbergja íbúð á annarri hæð með sérinngangi við Reyrengi 2, Reykjavík. Opið yfirbyggt bílskýli fylgir íbúðinni. Húsinu hefur verið vel viðhaldið síðustu ár og var sprunguviðgert og málað og endurnýjaðar þakrennur og niðurföll 2022. Snjógildrur settar á þak 2025. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu svosem leik- og grunnskóla, verslunarkjarnann við Spöng og íþróttahúsið við Egilshöll. Einnig nálægð við fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 104,4 fm þar af geymsla í kjallara 5,6 fm. Lýsing :Forstofa er án gólfefna með góðum nýlegum opnum fataskáp.
Eldhúsið er með hvítmálaðri innréttingu og svörtum höldum. Gott skápa- og vinnupláss. Opið er úr eldhúsi yfir í alrými. Góður gluggi er í eldhúsinu. Parket á gólfi og flísar eru milli efri og neðri skápa.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi opið rúmgott rými. Þaðan er útgengt á góðar suðvestur svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum, parket á gólfi.
Herbergi II&III eru rúmgóð með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari, hvítri viðar innréttingu og flísum á gólfi og veggjum. Þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara í góðri inrréttingu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Sérgeymsla er á jarðhæð og er hún 4,8 fm.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Býlskýlið er beint neðan við íbúðina.
Lóðin er mjög snyrtileg.
Nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum gulla@remax.is eða s. 661-2363
Garðar Hólm lgf. í gegnum gardar@remax.is eða s. 899-8111