Virkilega falleg þriggja herbergja íbúð með bílastæði og sérinngangi í góðu tvíbýli við Móabarð 8 í Hafnarfirði.
Eignin er alls 74,8 fm og eru allir fm innan eignar.Nánari lýsing:Sérinngangur inn í íbúðina.
Forstofa með parketi á gólfi og opnu fatahengi,
Eldhús og stofa í björtu alrými.
Eldhús með hvítri innréttingu með stæði fyrir ísskáp, innfelld uppþvottavél og ofn í vinnuhæð.
Herbergin eru tvö, bæði með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar, upphengt salerni, skápur, gólfhiti og opnanlegur gluggi.
Lítil
geymsla innan íbúðar undir stiga.
Köld
geymsla fyrir framan íbúð.
Sameiginlegt þvottahús ( 7,7 fm) með stæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt geymsluhillum sem skipt er milli íbúða.
Innangengt er úr íbúð í þvottahúsið, einnig sérinngangur inn í þvottahús.
Sérbílastæði og skv. eignaskiptasamningi bílskúrsréttur.
Stór lóð sem er í óskiptri sameign.
Framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda:-Innrétting á baði, vaskur, speglaskápur og skápur 2025.
-Útihurð inn í þvottahús endurnýjuð 2025.
-Eldhúsinnrétting frá Parka 2022
-Parket frá Parka 2022
-Innihurðar frá Parka 2022
-Rafmagn í íbúð endurnýjað 2022
-Rennur endurnýjaðar 2019
-Settur brunnur og lagnir myndaðar 2019.
-Hús og þak málað 2017
Ekkert starfandi húsfélag er í húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is