Lýsing eignar:Domusnova og Ingunn Björg kynna í sölu fallega, töluvert endurnýjaða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð á eftirsóttum stað við Meistaravelli 33 í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða íbúð sem skráð er alls 80,8 m2 að stærð skv. fasteignaskrá HMS sem skiptist þannig að... Sýna meira
Lýsing eignar:Domusnova og Ingunn Björg kynna í sölu fallega, töluvert endurnýjaða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð á eftirsóttum stað við Meistaravelli 33 í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða íbúð sem skráð er alls 80,8 m2 að stærð skv. fasteignaskrá HMS sem skiptist þannig að íbúð er skráð 77,3 m2. auk 3,5 m2 geymslu. Íbúðin skiptist í herbergjagang með forstofuskáp, tvö svefnherbergi og baðherbergi, rúmgóða stofu og borðstofu í fallegu flæði með hálf opnu eldhúsi, frá stofu er útgengt á suðvestursvalir. Af svölum er útsýni yfir mikið opið svæði og út á KR völlinn. Níu íbúðir eru í stigaganginum, tvær íbúðir eru á stigapalli. Lóð og öll aðkoma er falleg með góðum bílastæðum með tveimur rafhleðslustöðvum. Eignarhlutur þessarar íbúðar er 3,07% í heildarhúsinu skv. eignaskiptayfirlýsingu. Húsið sjálft og sameign hafa fengið gott viðhald á undaförnum árum. Frábær staðstetning í Vesturbænum. Samkvæmt upplýsingum frá seljendum var eftirfarandi framkvæmt frá 2016 - 2019 :Húsið sprunguviðgert og málað að utan 2016-2019Þakjárn málað 2016-2019Skipt um hluta af gluggum og gleri 2016-2018Svalagólf slípuð og flotuð, múrviðgerðir á svalahandriðumTröppur að andyri og niður í kjallara lagaðarHleðslustöðvar (2) fyrir 4 bíla á bílaplani fyrir Meistaravelli 31-35Framkvæmdir í sameign á Meistaravöllum 33.2017 var skipt um rafmagnstöflu í sameign.2018 var settur ofn í anddyri og hurð út í garð frá kjallara.2019 var dyrasýmakerfi endurnýjað.2022 skipt um teppi og stigagangur málaður í desember.Á sama tíma var skipt út rafmagnslögnum í stigagangi, nýjir bjöllurofar, ljósarofar, innstungur og ljós í stigagangi.Nánari upplýsingar veitir:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / Forstofa : Náttúrusteinn á gólfi, fatahengi, laus fataskápur.Stofa og borðstofa : Rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi og útgengt á suðvestur svalir.Eldhús : rúmgott og bjart með viðarinnréttingu. Fínn borðkrókur við glugga. Náttúrusteinn á gólfi.Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskáp og harðparketi á gólfi. Svefnherbergi : Harðparket á gólfi.Baðherbergi : Flísar á veggjum sem hafa verið málaðar, dúkur á gólfi og skápar á vegg. Baðkar með sturtu.Sérgeymsla, sameiginleg hjólageymsla, þvottahús og þurrkherbergi eru í kjallara.Athygli er vakin á því að seljandi hefur ekki búið í eigninni í töluverðan tíma og þekkir því ekki ástand hennar að öðru leyti en fram kemur í söluyfirlitinu. Væntanlegum kaupendum er því bent á að skoða eignina með það í huga. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.