Domusnova og Soffía Sóley lögg. fasteignasali kynna: Krossvelli 2, Hvalfjarðarsveit ÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR ** seld með fyrirvara um fjármögnun ** Glæsileg efri hæð með sér inngangi ásamt bílskúr í tveggja hæða fjölbýlishúsi.Fallegt útsýni til sjávar.Þriggja herbergja íbúð (95,5 fm) bílskúr (32.5 fm), ... Sýna meira
Domusnova og Soffía Sóley lögg. fasteignasali kynna: Krossvelli 2, Hvalfjarðarsveit ÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR ** seld með fyrirvara um fjármögnun ** Glæsileg efri hæð með sér inngangi ásamt bílskúr í tveggja hæða fjölbýlishúsi.Fallegt útsýni til sjávar.Þriggja herbergja íbúð (95,5 fm) bílskúr (32.5 fm), svalalokun og hjólageymsla.Sameiginlegar útitröppur með íbúðinni við hliðina.Forstofa, flísar á gólfi, skápur.Stofa, eldhús, borðstofa og herbergi eru með samfelldu parketiEldhús er með hvítir innréttingu, límtré á borðum, uppþvottavél, helluborð með innbyggðri viftu, 2 bakarofnar, uppþvottavél fylgir, dyr útá yfirbyggðar hellulagðar svalir. 2 svefnherbergi með góðum skápum.Baðherbergi/ þvottherbergi, flísalagt gólf og veggir, sturta, góðar innrétting, vélar í vinnuhæðLoft fylgja þakhalla, innfelld ljós. Bílskúr með epoxy á gólfi. Hjólageymsla og útisnúrur eru sameiginlegar. Húsið er steinsteypt á hefðbundinn hátt, einangrað og klætt að utan með litaðri álbáruklæðningu og sléttu áli. Allt burðarvirki: sökklar, botnplata, útveggir og gólfplötur er staðsteypt, járnbent steinsteypa.Nánari upplýsingar veitir:Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali / sími 846-4144Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.