Rúmgóð og björt 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með suður sólpalli og bílskúr í litlu fjölbýli við Kristnibraut í Grafarholti. Útsýni er að Esjunni úr herbergjum. Afgirtur rúmgóður suður sólpallur. Þvottahús innan íbúðar. Stutt er út í náttúruna, einnig leik- og grunnskóla, verslanir og alla helstu þjón... Sýna meira
Rúmgóð og björt 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með suður sólpalli og bílskúr í litlu fjölbýli við Kristnibraut í Grafarholti. Útsýni er að Esjunni úr herbergjum. Afgirtur rúmgóður suður sólpallur. Þvottahús innan íbúðar. Stutt er út í náttúruna, einnig leik- og grunnskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Eignin er laus við kaupsamning. Eignin skiptist í forstofu, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 118,1 fm. og þar af er geymsla 7,7 fm. og bílskúr 28,2 fm. Fasteignamat fyrir árið 2024 verðpur 66.550.000kr. Nánari lýsing: Forstofa með skáp og flísar á gólfi. Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Léttur veggur skilur á milli eldhúss og stofu. Útgengt er út á afgirtan suður sólpall úr stofunni. Eldhús er með góðri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli efri og neðri skápa, góður eldhúskrókur og parket á gólfi. Hol með parketi á gólfi. Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi, mjög gott útsýni og parket á gólfi. Svefnherbergi með skáp, mjög gott útsýni og parket á gólfi. Baðherbergi með innangengri sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, góðri innréttingu og flísalagt í hólf og gólf. Þvottahús er innan íbúðar. Borð, vaskur, gott hillupláss og flísar á gólfi. Geymsla íbúðar með góðu hilluplássi er í sameign. Bílskúr er á bakhlið hússins með heitu og köldu vatni og rafmagni. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Aðeins níu íbúðir eru í stigaganginum. Framkvæmdir í húsfélaginu Kristnibraut 37.2018 - Málað handrið inni á stigagangi og stigagangur málaður.2019 - Skipt um teppi á stigagangi.Framkvæmdir í stóra húsfélaginu Kristnibraut 37-41. 2018 – gluggar málaðir að utan2019 – þak málað2020 – hvítir fletir málaðir að utan og steinaði hlutinn sílanborinn (allt hvítt málað fyrir utan þakkantinn) + borið á allar útidyrahurðirAllar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.