LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali –
823-2800 / monika@landmark.is kynna:Virkilega fallega og rúmgóða fjögurra herbergja 130,1 fm íbúð á jarðhæð með stæði í lokuðum bílakjallara við Kópavogsbrún 1 í Kópavogi.
Íbúðin er í vönduðu tveggja hæða staðsteyptu fjórbýli byggt árið 2013. Afgirt hellulögð verönd er út frá stofu sem snýr í suður og vestur með pallalokun að hluta. Gluggar á þrjá vegu í íbúð sem hleypir góðri náttúrulegri birtu inn. Íbúðin er 122,6 fm og geymslan er 7,5 fm, samtals 130,1 fm.
Séreign skiptist í: forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu og sér geymslu staðsett í kjallara.
Í sameign er: Hjóla- og vagnageymsla og ýmis sameiginleg rými, þ.á.m. dekkjageymsla. Fjögur sameiginleg bílastæði á lóð.
✅ Falleg og rúmgóð íbúð í vönduðu fjögurra íbúða fjölbýlishúsi
✅ Stæði í bílageymslu og fjögur sameiginleg bílastæði á lóð
✅ Sérafnotareitur og afgirt verönd með pallalokun
✅ Þrjú svefnherbergi, rúmgott baðherbergi og sér þvottahús
✅ Frábær staðsetning í suðurhlíðum Kársness í KópavogiNánari lýsingForstofa: Aflokað rými, flísar á gólfi og stór fataskápur.
Alrými: Bjart og rúmgott með eldhúsi, stofu og borðstofu, harðparket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápa og skúffurými, bakarofn, keramik helluborð, háfur yfir úr burstuðu stáli og innbyggð uppþvottavél. Flisar á milli skápa og LED lýsing undir efri skápum.
Svefnherbergin eru þrjú: Öll rúmgóð með fataskápum, harðparket á gólfum.
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með bæði Walk inn sturtu og baðkari, upphengt salerni, baðinnrétting, vegghengdur skápur og handklæðaofn. Gólfhiti og góður gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottahús: Tengi fyrir þvottavél, efri skápa innrétting, hillur og vinnuborð með vaski, flísar á gólfi.
Útisvæði: Sér afnotareitur út frá stofu. Afgirt hellulögð verönd sem snýr í suður og vestur með pallalokun úr öryggisgleri sem er um 85% opnanlegt. Eignin hefur sérafnotarétt af 71,6 fm, sunnan, vestan og norðanmegin við húsið, sjá teikningu.
Geymsla: Sér geymsla í sameign.
Bílakjallari: Rúmgott sér stæði og aðstaða fyrir bílaþrif.
StaðsetningEignin er frábærlega vel staðsett í suðurhlíðum Kársness í Kópavogi, beint fyrir neðan Rútstún og Kópavogslaug, leikskóli er á næstu lóð og barnaskóli Kársness í hverfinu. Stutt í göngustíga við sjávarsíðuna.
AfhendingEignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundisHafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur –
823-2800 /
monika@landmark.isLáttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöfLandmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat