Jason Kristinn, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Kjarrás 12. Rúmlega 100 fermetra eign á útsýnisstað í Svínadal, Þórristaðavatn í Hvalfjarðarsveit. Kjarrás 12, heilsárshús ásamt gestahúsi í Svínadal. Aðeins 45 mínútna keyrsla frá Reykjavík. Húsin standa á 6.350 fm eignarlóð fyrir ofan götu. Gólfhiti er í húsinu.
Aðalhúsið sem er 74,1 fm auk 20 fm svefnlofts og skiptist í anddyri, 3 svefnherbergi, risloft, baðherbergi, eldhús og stofu í opnu rými.
Gestahúsið er 25 fermetrar að sögn eiganda, en er skráð 17,3 fm og byggt árið 2014. Það er með eldhúsi, baðherbergi og opnu rými.
Sauna / Gufuaðstaða með fallegu útsýni ásamt innisturtu.
Aðalhús er með þremur svefnherbergum og svefnlofti. Stofa og eldhús í opnu rými. Baðherbergi flísalagt með sturtu og þvottaaðstöðu.
Gólfhiti er í húsinu. Húsið er hitað með varmadælu.
Gestahús er opið rými með eldhúsinnréttingu og snyrtingu. Gestahúsið er hitað með rafmagnsofnum.
Stór 100 fm pallur.
Lóðin er öll girt af með girðingu en aðkoma að húsunum er um hlið.
Sumarhúsafélag er á svæðinu, ca. 60 þús á ári.
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.