Kasa Fasteignir sími 461-2010Kjarnagata 57 A og B er nýtt fjölbýlishús í smíðum sem verður afhent sumarið 2022. Íbúðirnar eru tveggja til fimm herbergja, allar íbúðir hafa svalir til vesturs og sérgeymslu í sameign. Flestum eignum fylgir stæði í bílakjallara þar sem gert er ráð fyrir hleðslustöð fyr... Sýna meira
Kasa Fasteignir sími 461-2010Kjarnagata 57 A og B er nýtt fjölbýlishús í smíðum sem verður afhent sumarið 2022. Íbúðirnar eru tveggja til fimm herbergja, allar íbúðir hafa svalir til vesturs og sérgeymslu í sameign. Flestum eignum fylgir stæði í bílakjallara þar sem gert er ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla við hvert stæði. Byggingaraðilinn, B.e húsbyggingar efh er vandaður og traustur byggingaraðili með mikla reynslu í byggingariðnaði.Kjarnagata 57 A íbúð 404, 600 Akureyri.4. herbergja 85,1 fm. íbúð á 4. hæð ásamt bílastæði í bílageymslu.Nánari upplýsingar um eignina má sjá hér: https://www.behus.is/k57-404Íbúðin er fjögurra herbergja og samanstendur af forstofu, baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottaaðstöðu, eldhúsi, stofu, hjónaherbergi og tveimur barnaherbergjum, samtals 75,2 fm. Íbúðinni fylgir geymsla í kjallara 9,9 fm.(0005) og svalir til vesturs (0411 – 6,3 m2).Eigninni fylgir hluti í sameign, samkvæmt kaflanum um sameign.Í bílgeymslu fylgir eigninni eitt bifreiðastæði merkt B06, sbr. fylgiskjal um eignatengingu bílastæða .Afhending sumar 2022Kjarnagata 57 - SkilalýsingUpplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda a.m.k. sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.Hönnun hússins er unnin af teikni- og verkfræðistofunni Opus ehf. Hönnun raflagna er unnin af Raftákn ehf.Húsið er staðsett við kjarnagötu 57 og er á þremur og fjórum hæðum, auk kjallara og bílageymslu, með lyftu alls 33 íbúðir. Íbúðunum fylgir sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara, þar sem hver íbúð verður líka með sér geymslu. Í kjallara verða einnig tæknirými og aðstaða fyrir ræstingu. Í bílageymslu verða 30 bílastæði. Íbúðunum öllum fylgja opnar svalir. Svalagangur með glerlokun er við inngang íbúða. Frágangur utanhúss Útveggir: Allir útveggir hússins eru einangraðir að utan með 100mm steinull. Húsið er klætt að utan með lituðu áli, láréttri báru og sléttum plötum. Á svölum og svalagöngum eru veggir klæddir með viðarklæðningu og/eða sléttum álplötum, samkvæmt teikningu.Gluggar og hurðir: Allir gluggar og hurðir íbúða eru ál/tré gluggar frá danska framleiðandanum Ideal Combi, af gerðinni Futura+, allir gluggar og hurðir eru með tvöföldu sólstopp gleri (suncool 50/25).Þak: Loftaplata er steypt. Þak er viðsnúið, með tvöföldu lagi af heilbræddum pappa á slípaðan og grunnaðan steininn. Ofan á pappan kemur XPS einangrun hulin með möl.Svalir: Svalagólf er klætt með pallaefni, handriði er samkvæmt teikningu.Svalgangur: Snjóbræðslukerfi er á svalagöngum og eru þeir hellulagðir með gúmmíhellum. Glerlokun er á svalagangi.Lóð: Stéttar við innganga eru steyptar með snjóbræðslukerfi, bílastæði eru malbikuð. Lóð er þökulögð í samræmi við teikningar. Lóð yfir bílageymslu er þökulögð, og handriði samkv. teikingum. Engar aðrar girðingar né annar gróður fylgir.Loftræsting: Vélrænt útsog er frá baðherbergi/þvottahúsi þar sem það á við samkv. teikningum. Frágangur innanhússSameign: Gólf í kjallara í hjóla- og vagnageymslu er steypt og málað. Gólf og Stigi í stigahúsum eru steypt og flísalögð/teppalögð. Stigahús og veggir í sameign eru málaðir í lit völdum af hönnuði hússins.Bílageymsla: Gólf í bílageymslu eru steypt, og verður frárennsli hitaveitu steypt i gólfið til upphitunar. Gólf verða ómáluð fyrir utan merkingar á bílastæðum. Raflögn fyrir rafmagnsbíla verður við öll stæði í bílageymslu. Aðstaða til bílaþvotts verður í bílageymslu.Lyftur: Lyftur eru í húsinu frá viðurkenndum framleiðanda.Útveggir: Allir útveggir eru sandsparslaðir og málaðir.Innveggir: Allir innveggir/léttveggir eru klæddir tvöföldu gipsi á stálstoðum, sparslaðir og málaðir.Loft í íbúðum: Loft eru sandspörsluð og máluð.Gólf í íbúðum: Burðarplata er steypt þar sem einangrun og hitalögn er lögð ofaná aður en sjálf gólfplatan er steypt. Með þessu næst hámarks hljóðeinangrun milli hæða.Harðparket er á gólfum íbúða, flísar eru á gólfum baðherbergis, þvottahúss og forstofu.Pípulögn: Gólfhitakerfi er í öllum íbúðum, neysluvatns- og frárennsislagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningum.Raflögn: Raflögn er fullfrágengin, ljósakúplar eru á baði, þvottahúsi og geymslu. Innfeld lýsing er í eldhúsinnréttingu. Innfelt ljós er í spegli á baði. Önnur ljós fylgja ekki innan íbúðar. Öll lýsing í sameign verður fullbúinn. Útiljós eru á svalagöngum og svölum. Við innganga hússins verður útilýsing. Reykskynjarar eru í öllum íbúðum og sameign samkv. teikningu. Mynd-dyrasími er í öllum íbúðum.Innréttingar og skápar: Innréttingar, í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi eru frá danska framleiðandanum HTH, samkv. teikningu framleiðana. Skápar eru í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergjum samkv. teikningum. Yfirborð allra innréttinga er úr harðplasti. Harðplast er á borðplötum.Eldhús: Með eldhúsinnréttingu fylgir bakarofn, keramik helluborð og háfur frá AEG. Gert er ráð fyrir plássi fyrir uppþvottavél. Uppþvottavél fylgir ekki.Baðherbergi: Veggir á baðherbergi sem mætast við sturtuhorn eru flísalagðir. Veggir við inngangshurð og bakvið innréttingu eru máliðir. Klósettkassi er innbyggður. Glerhurðir eru við sturtu.Þvottahús: Veggir í þvottahúsi eru máliðir.Hreinlætistæki: Öll hreinlætis- og blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð og koma þar sem teikningar sýna.Hurðir: Innihurðir eru hvítar sprautulakkaðar. Handföng eru með stáláferð. Í sameign eru eldvarnahurðir (EI230-Cs) lakkaðar í lit völdum af hönnuði hússins.Eldvarnir: Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð. Eldvarnahurðir eru í sameign samkv. Teikningu.Annað: Í öllum íbúðum verður settur upp læstur lyfjaskápur.Heimasíða byggingaraðila : www.behus.isNánari upplýsingar:Helgi á eða í 666-0999.Sibba á eða í 864-0054.Sigurpáll á eða í 696-1006.