Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Karlsrauðatorg 26 íbúð102 - Vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli á Dalvík - stærð 68,6 m²
** Eignin er laus til afhendingar í byrjun ágúst 2026 ** Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og tvær geymslur, önnur innan íbúðar og hin er í sameigninni.
Forstofa er með flísum á gólfi og opnu hengi. Úr forstofu er gengið inn á hol með flísum á gólfi.
Eldhús, flísar á gólfi og hvít og beyki innrétting með ljósum flísum á milli skápa.
Stofa er ágætlega rúmgóð, með flísum á gólfi, gluggum til tveggja átta og hurð út til suðurs á steypta verönd.
Svefnherbergi er með plast parketi á gólfi og spónlögðum fjórföldum beyki fataskáp.
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, handlaug og efriskápum, wc, baðkari og sturtu.
Þvottahús er inn af eldhúsinu með lökkuðu gólfi, skolvask og opnanlegum glugga.
Geymsla innan íbúðar er með lökkuðu gólfi, hvítum skáp og hillum. Önnur geymsla er í sameigninni á sömu hæð einnig með lökkuðu gólfi og hillum.
Í sameign á jarðhæðinni er sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt rými sem íbúar geta nýtt sér þegar gestir koma og þurfa gistingu. Um er ræða herbergi með lítilli eldhúsinnréttingu og fyrir framan er snyrting.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.