107,9 fm. fjögurra herbergja raðhús með þrjú svefnherbergi. Gólfhiti í öllum rýmum með hitastillum. Loftræst með sjálfstæðu loftskiptikerfi. Afhending 1. maí 2026.
Eiginleikar
Íbúð
Vel skipulagt og glæsilegt raðhús. Húsið er timburhús, báruklætt með standandi timburklæðningu. Útihurðar og gluggar svartir ál/tré. Sorptunnugeymsla fyrir fjórar tunnur. Sérinngangur.
Stofa
Opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Parket á gólfi.
Eldhús
Ljósrík tvílit innrétting frá WOKÉ III. Gott vinnupláss. Spanhelluborð með innbyggðum háf, bökunarofn í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Svefnherbergi
Hjónaherbergi mjög rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi. Herbergi II mjög rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. Herbergi III mjög rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi
Með 'walk-in' sturtu, sturtugleri, handklæðaofni, upphengt salerni og baðinnréttingu með skúffum og handlaug. Flísar á gólfi og veggir að hluta til flísalagðir.
Þvottahús
Þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Geymsla
Geymsla.
Bílskúr
Rúmgóður bílskúr með rafdrifinni hurð og gönguhurð. Innangengt frá anddyri.
Garður
Fullbúin lóð með hellulögðu bílaplani með hitalögnum. Baklóðin er torfð.
Önnur herbergi
Anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Tæki
Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, bökunarofn. Handklæðaofi í baðherbergi.
Efni
Timburhús, báruklætt með standandi timburklæðningu. Parket á gólfi í alrýminu og svefnherbergjum. Flísar á gólfi í anddyri, baðherbergi og þvottahúsi. Flísalagðir veggir að hluta í baðherbergi.
Annað
Loftræst með sjálfstæðu loftskiptikerfi frá Flexit. Kerfið blæs fersku lofti inn í íverurými og dregur loft út frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsogi er endurheimtur með varmaendurvinnslu. Afhending 1. maí 2026.