Miklaborg kynnir: Tveggja herbergja íbúð við Jöklasel 25. Íbúðin skiptist í hjónaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, sér þvottahús og baðherbergi. Sérgeymsla í sameign. Birt stærð er 74,7 fm og þar af er geymsla skráð 7,8 fm. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning !
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, sími: 6922704, netfang: fridjon@miklaborg.is.
Jöklasel 25 er steinsteypt 3ja hæða fjöleignarhús. Húsið er sambyggt Jöklasel 27-29-31. Á 1. hæð er ein íbúð, anddyri, geymslur, þurkherbergi og sorpgeymsla. Á 2. og 3. hæð eru þrjár íbúðir á hvorri hæð ásamt stigagangi.
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu, þar er fataskápur. Til hægri er gengið inn í svefnherbergi með fataskápum. Eldhús með ljósri innréttingu og dökkri borðplötu. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Fyrir innan eldhús er þvottahús með ljósri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergi með innréttingu og speglaskáp fyrir ofan skolvask og sturta. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa. Útgengt út á svalir frá stofu. Parket á gólfum í alrými og flísar í votrýmum. Möguleiki á að fá íbúðina afhenta við kaupsamning !
Endurbætur á eign:
2017. Geymsla máluð, veggir og gólf.
2018. Ný rafmagnstafla sett upp og skipt um tengla.
2018. Skipt um parket á alrými eignar.
2018. Skipt um einn ofn í eldhúsi og annar fjarlægður þar.
2018. Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt borðplötu.
2018. Skipt um fataskápa í svefnherbergi.
2022: Nýtt gler í eldhúsglugga. Skipt um lista í öllum gluggum. Nýir þéttilstar í opnanleg fög.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, sími: 6922704, netfang: fridjon@miklaborg.is.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu






















| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 2 | 74,70 m² | 58.500.000 kr. 20. maí 2026 | 31.000.000 kr. 17. október 2017 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 20.05.2026 Nánar | 74,7 m² | 783.133 kr. | 58.500.000 kr. |
0302 | - | - | - | 52.450.000 kr. 25. maí 2022 |
0303 | - | - | - | 42.000.000 kr. 28. ágúst 2019 |
| 3 | 72,00 m² | 55.900.000 kr. 9. maí 2024 | 37.400.000 kr. 16. nóvember 2020 |
| 3 | 72,00 m² | 59.900.000 kr. 9. desember 2025 | 58.500.000 kr. 16. febrúar 2026 |
0203 ![]() | 3 | 101,70 m² | 74.500.000 kr. 25. maí 2026 | - - |
0101 | - | - | - | - - |