Íbúð
5 herbergja neðri sérhæð. 167,2fm heildarstærð (137,2fm skráð + 38fm óskráð). Staðsett í neðstu röð Hverafoldar við sjóinn. Virkilega falleg lóð með hellulagðri innkeyrslu, stétt fyrir framan íbúð og fallegum gróðri. Baklóð hússins snýr suðurs og er skjólsæl.
Stofa
Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum og borðstofu. Harðparket á gólfi.
Eldhús
Góð vinnuaðstaða með skúffu- og skápaplássi. Tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi
Herbergi I: 8,2fm með einföldum fataskáp, harðparket. Herbergi II: 9,9fm með tvöföldum fataskáp með skúffum, harðparket. Herbergi III: 11,9fm með þreföldum fataskáp, harðparket. Herbergi IIII: 10,9fm með stórum fataskáp með rennihurðum og útgangi á sólpall, harðparket.
Baðherbergi
7,5fm, flísalagt í hólf og gólf með baðkari, þreplausri sturtu, stórum spegli og góðu hirsluplássi.
Þvottahús
Þvottahús inn af forstofu með innréttingu, snúrum í lofti og rennihurð fyrir. Flísar á gólfi.
Geymsla
Geymsla inn af forstofu, 10,8fm að stærð.
Bílskúr
Tvö bílastæði tilheyra eigninni með einni rafhleðslu.
Garður
Sameiginlegur garður, fallega gróinn með stórum trjám.
Svalir/þak
Sólpallur 78,3fm að stærð, sérlega skjólsæll með harðviði á borðum.
Önnur herbergi
Sjónvarpshol í miðju íbúðar með hljóðeinangrunar panel á vegg, harðparket á gólfi.
Tæki
Tengi fyrir uppþvottavél.
Svæði
Staðsett í neðstu röð Hverafoldar við sjóinn. Fallegt útsýni yfir voginn. Mikil náttúra og fuglasöngur. Stutt í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu. Friðsælt umhverfi.