Íbúð
Neðri sérhæð. Samanstendur af forstofu, 4 svefnherbergjum, sjónvarpsholi, stofu, eldhúsi, þvottahúsi, geymslu og sólpalli. Harðparket á gólfi í flestum herbergjum.
Stofa
Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum og borðstofu. Harðparket á gólfi.
Eldhús
Eldhúsið er með góða vinnuaðstöðu, skúffu- og skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi
Herbergi I (8,2fm): Einfaldur fataskápur, harðparket. Herbergi II (9,9fm): Tvöfaldur fataskápur með skúffum, harðparket. Herbergi III (11,9fm): Þrefaldur fataskápur, harðparket. Herbergi IIII (10,9fm): Stór fataskápur með rennihurðum og útgangi á sólpall, harðparket.
Baðherbergi
Baðherbergið (7,5fm) er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, þreplausri sturtu, stórum spegli og góðu hirsluplássi.
Þvottahús
Þvottahúsið er inn af forstofu með innréttingu, snúrum í lofti og rennihurð fyrir. Flísar á gólfi.
Geymsla
Geymslan er 10,8fm að stærð og er inn af forstofu.
Bílskúr
2 bílastæði tilheyra eigninni með einni rafhleðslu (þriggja fasa).
Garður
Sameiginlegur garður, fallega gróinn með stórum trjám. Hellulögð innkeyrsla, stétt fyrir framan íbúð, fallegur gróður. Baklóðin er skjólsæl og snýr suðurs.
Svalir/þak
Sólpallur er 78,3fm að stærð, sérlega skjólsæll með harðviði á borðum. Útgangur úr einu svefnherbergi.
Félagssvæði
Sameiginlegur garður.
Önnur herbergi
Sjónvarpshol: Í miðju íbúðar með hljóðeinangrunar panel á vegg, harðparket á gólfi.
Tæki
Tengi fyrir uppþvottavél í eldhúsi.