LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu glæsilega og mikið endurbætta 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í Hörðalandi í Fossvogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu skóla og leikskóla. Mjög gott skipulag og nýlegar endurbætur hannaðar af Eddu Sif Guðbran... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu glæsilega og mikið endurbætta 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í Hörðalandi í Fossvogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu skóla og leikskóla. Mjög gott skipulag og nýlegar endurbætur hannaðar af Eddu Sif Guðbrandsdóttur hjá Studio Brandur sem koma einstaklega vel út, yfirbyggðar suðursvalir og næg bílastæði. Yfirstandandi eru gluggaskipti sem seljendur greiða fyrir. Eignin er skráð 85,6 fm samkvæmt HSM en þar af er 4 fm geymsla í kjallara Smellið hér til að sækja söluyfirlit en annars eru allar frekari upplýsingar veittar í síma 663 2300 eða . Nánari lýsingForstofa eða opið miðrými með nýlegum fataskápum, parket á gólfi.Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými inn í eldhús, parket á gólfi. Útgengt á rúmgóðar og yfirbyggðar suðursvalir.Eldhús með nýlegri innréttingu, innbyggðum kæli og uppþvottavél sem fylgja. Vönduð tæki, spanhelluborð og kvartssteinn frá Granitsteinum á borðum, parket á gólfi.Hjónaherbergi með stórum fataskáp, parket á gólfi.Barnaherbergi I, parket á gólfi.Barnaherbergi II, parket á gólfi.Baðherbergi flísalagt með eldri innréttingu, salerni og baðkari með sturtustöng.Geymsla á jarðhæð, mjög snyrtileg með góðum hillum. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegu þvottahúsi og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Árið 2022 var eignin töluvert endurbætt að innan en þá var opnað á milli stofu og eldhúss, eldhús hannað af Eddu Sif Guðbrandsdóttur hjá Stúdíó Brandur og að fullu endurbætt með vönduðum tækjum og steinborðplötu, öll vinna unnin af fagaðilum.Húsið að utan hefur fengið mjög gott og reglulegt viðhald en þá eru yfirstandandi framkvæmdir á þeim á þeim gluggum sem eftir er að endurnýja í sameign jafnt sem séreign. Nýjar útidyrahurðar á og ný svalahurð í íbúð. Einnig verða flísar teknar af svölum og vatnsverjandi efni borið á múr. Árið 2023 voru loftstokkar hreinsaðir. Árið 2022 var húsið málað, þak slípað og málað og þakrennur endurnýjaðar sem og einnig múrviðgerðir og málun á svalagólfum og svalahandriðum. Árið 2019 var stétt á norðurhlið endurnýjuð, hiti í stétt, lýsing og ný hellulögn að hluta. Árið 2015 var skipt um stofuglugga á suðurhlið hússins (því ekki inni í gluggaskiptum núna) og austurgafl hússins klæddur með sléttri álklæðningu.Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarPanta FRÍTT söluverðmat