Fasteignamiðlun kynnir eignina Hlíðarvegur 22, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 223-0402 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hlíðarvegur 22 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 223-0402, birt stærð 168.8 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.Um er að ræða efri hæð og ris í tvíbýlishúsi með skjólgóðum garði og bílskúr. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, 3 rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.
Neðri hæð er um 82m² og samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa: er flísalögð með góðu fatahengi.
Eldhús: er með hvítum innréttingum og dökkri borðplötu. Fallegt útssýni yfir fjörðinn er úr eldhúsi.
Stofa/borðstofa: liggja saman í opnu rými með parket á gólfi. Gott gluggapláss er í rýminu með fallegu útsýni.
Baðherbergi: hefur verið endurnýjað með fibo tresbo plötum á veggjum og flotuðu gólfi. Einnig er baðkar með sturtu og gleri, upphengt salerni og innrétting. Aðgengi er að geymslu undir stiga inn af baðherbergi.
Þvottahús: er með góðu skápaplássi og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Golf er flotað og til staðar er opnanlegur gluggi.
Geymsla: er inn af anddyri en einnig er gott geymslupláss undir stiga.
Ris er um 58m² að hluta til undir súð og samanstendur af 3 svefnherbergjum, rúmgóðu sjónvarpsrými og geymslu. Þakgluggar eru í öllum rýmum sem voru endurnýjaðir árið 2025. Risið var tekin í gegn árið 2007 en þá voru veggir klæddir og korkur settur á gólf. Hitaveiturofnar á efri hæð voru settir upp árið 2019.
Svefnherbergi: eru mjög rúmgóð með kork á gólfi.
Sjónvarpsrými: er mjög rúmgott með kork á gólfi.
Geymsla: er með góðu hilluplássi og kork á gólfi.
Eignin er byggð í Funkis stíl og er múrhúðað að utan. Byggð hefur verið rúmgóð timburverönd fyrir framan inngang eignarinnar með skýli fyrir norðanátt og einnig fyrir ofan inngang.
Bílskúr er á lóð eignarinnar sem er skráður 28,8 m². Hann er klæddur með bárujárni, óeinangraður og án hita og rafmagns en gefur ýmsa möguleika.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.