Eignamiðlun kynnir:Falleg mjög rúmgóð tveggja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í Norðlingaholti. Glæsilegt útsýni af efstu hæð, sérlega stórar svalir, björt stofa og eldhús, rúmgott herbergi, nýlega endurnýjað baðherbergi, rúmgóð geymsla á jarðhæð. Íbúðin sjálf er 75,6 fermetrar, geymsla á geymslug... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Falleg mjög rúmgóð tveggja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í Norðlingaholti. Glæsilegt útsýni af efstu hæð, sérlega stórar svalir, björt stofa og eldhús, rúmgott herbergi, nýlega endurnýjað baðherbergi, rúmgóð geymsla á jarðhæð. Íbúðin sjálf er 75,6 fermetrar, geymsla á geymslugangi jarðhæðar er 12,2 fermetrar, samtals birt stærð séreignar 87,8 fermetrar. Sérinngangur er í íbúðina af svalagangi.Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA rekstrarhagfræðingur, lgfs. í síma 663-2508 eða .Eignin er einstaklega falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á efstu hæð í fjögra hæða lyftuhúsi, ásamt sérgeymslu á jarðhæð hússins. Gengið er inn í stigahús utan á húsinu, þar sem er lyfta, og inn í íbúðina af svalagangi.Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp á heilum vegg, dökkar flísar á gólfi. Stofa og eldhús eru í opnu rými, fallegt plankaparket með breiðum borðum á gólfi. Útgengt á stórar hellulagðar suðsvalir með einstöku útsýni. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu með granít borðplötu, stállituðum tækjum og góðu skápaplássi, efri og neðri skápum, og mjög skemmtilegu morgunverðarborði við glugga þar sem útsýið nýtur sín til fulls. Bakarofn og keramik helluborð ásamt vönduðum háfi, nýlegur ísskápur ásamt uppþvottavél fylgja eigninni. Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum, glugga í átt að svalagangi. Baðherbergið er rúmgott, flísalagt gólf og veggir, með innréttingu með granit borðplötu, sturtu með flísalögðum botni og upphengdu salerni. Þvottahús er í íbúðinni með vinnuborði og skolvask, flísum á gólfi. Sérgeymsla er á jarðhæð ásamt hjóla- og vagnageymslu. Stutt í alla þjónustu, eftirsóttir leik- og grunnskólar í hverfinu. Einstaklega rólegt og fallegt hverfi, stutt í Heiðmörkina, Elliðavatn, Rauðavatn og Elliðaárdalinn. Stutt í Árbæjarlaug og íþróttaaðstöðu.Hér er um að ræða mjög rúmgóða tveggja herbergja íbúð, frábærlega staðsetta með einstöku útsýni og óvanalega stórum svölum..Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is ***Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Heimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook