Gimli fasteignasala kynnir: Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.Glæsilega tveggja herbergja útsýnisíbúð með stórum svölum á fjórðu og efstu hæð að Hestavaði 5 í Norðlingaholti.Rut Káradóttir innanhússarkitekt sá um hönnun innanhúss.Um er að ræða bjarta og fallega íbúð á fjórðu og efstu hæð í ... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.Glæsilega tveggja herbergja útsýnisíbúð með stórum svölum á fjórðu og efstu hæð að Hestavaði 5 í Norðlingaholti.Rut Káradóttir innanhússarkitekt sá um hönnun innanhúss.Um er að ræða bjarta og fallega íbúð á fjórðu og efstu hæð í lyftuhúsi með sérinngangi á hæð.Forstofan er með flísum á gólfi og góðum innbyggðum forstofuskáp.Stofan er björt og rúmgóð með hvíttuðu eikarparketi á gólfi. Stórar svalir (21 m²) sem snúa í suðvestur og eru með fallegu útsýni bæði til byggðar og fjalla.Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá Innex og Pandomo, vatnsheldinni lausn, á milli efri og neðri skápa.Svefnherbergi er stórt með rúmgóðum skápum og hvíttuðu eikarparketi á gólfi.Baðherbergið er með sturtuklefa og upphengdu klósetti. Pandomo er á veggjum og flísar á gólfi.Þvottahús er innan íbúðar, flísar á gólfi og vaskur í rými.Bjartur, rúmgóður og lokaður sameiginlegur stigagangur er mjög snyrtilegur. Lyfta er inni á stigagangi.Geymsla í kjallara fylgir íbúðinni.Sameiginleg hjólageymsla er í kjallara.Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, viðskiptafræðingur/aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 856 6524 eða með tölvupósti: eða Lilja Hrafnberg, viðskiptafræðingur/löggiltur fasteignasali, með tölvupósti: á milli kl. 9:00 og 19:00 alla virka daga.NÁNARI LÝSING:Gengið er í gegnum bjartan og góðan sameiginlegan stigagang og lyftuhús sem er teppalagt að hluta og flísalagt að hluta. Komið út á hæðina þar sem sérinngangur er í íbúðir. Stór og góð forstofa með flísum og góðum skáp, innaf forstofu er gengið inn í þvottahús til vinstri, flísar á gólfi og vaskur í rými, stórt og gott herbergi til hægri með parkett á gólfi og góðum fataskáp og inn í góða og bjarta stofu og eldhús, parkett á gólfi. Úr stofu er gengið inn í stórt og gott baðherbergi með loftræstingu. Útgengt er úr stofu á rúmlega 20 fermetra svalir og er fallegt útsýni til Bláfjalla, vestur á Reykjanes og yfir borgina frá svölunum.Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, viðskiptafræðingur/aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 856 6524 eða með tölvupósti: eða Lilja Hrafnberg, viðskiptafræðingur/löggiltur fasteignasali, með tölvupósti: á milli kl. 9:00 og 19:00 alla virka daga.Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því fljótlega 40 ára starfsafmæli. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.