Eignamiðlun kynnir:Björt og skemmtileg samtals 110,8 fermetra þriggja herbergja íbúð á jarðhæð, með stórum skjólsælum og sólríkum palli og skjólveggjum til suðurs út frá stofu. Stór og björt stofa og eldhús í alrými, tvö rúmgóð svefnherbergi, fallegt baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Íbúðin sjá... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Björt og skemmtileg samtals 110,8 fermetra þriggja herbergja íbúð á jarðhæð, með stórum skjólsælum og sólríkum palli og skjólveggjum til suðurs út frá stofu. Stór og björt stofa og eldhús í alrými, tvö rúmgóð svefnherbergi, fallegt baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Íbúðin sjálf er 99,4 fermetrar, geymsla á geymslugangi er 11,4 fermetrar, samtals birt stærð séreignar 110,8 fermetrar. Sérinngangur er í íbúðina utanfrá og þarf ekki að ganga í gegnum sameign hússins.Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA rekstrarhagfræðingur, lgfs. í síma 663-2508 eða .SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLITHúsið er vel staðsett í jaðri byggðar, stutt í margskonar útivistarmöguleika í Heiðmörk og Elliðaárdal. Íbúðin er vel skipulögð, þriggja herbergja og nýtist mjög vel.Íbúðin skiptist í anddyri með fataskáp, hjónaherbergi með stórum fataskáp, herbergi með fataskáp, flísalagt baðherbergi með baðkari, sturtu í baðkarinu, innréttingu og vegghengdu salerni, rúmgott þvottahús og stofu og eldhús í rúmgóðu alrými. Í eldhúsinnréttingu falleg stállituð tæki, ofn, keramik helluborð í eyjunni og vifta yfir. Steinn er á eldhúsbekk og eyju. Útgengi er á stóra og sólríka sólpalla til suðurs úr stofu sem að sög eiganda eru mjög skjólgóðir, en mikil birta er flæðir inn í alrýmið frá stórum suðurgluggum. Stofan er einstaklega björt og rúmgóð, gott pláss fyrir eldhúsinnréttinguna, borstofuborð og sófasett.Flísar eru á gólfum í forstofu, þvottahúsi og baði, en plasparket á herbergjum og alrými.Eignin er staðsett á vinsælum stað í Norðlingaholti þar sem stutt er í alla þjónustu. Má þar nefna grunnskóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu Fylkis og Árbæjarlaugina. Hér er um að ræða mjög vel hannaða og vel nýtta eign á flottum stað.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is***Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Heimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook