Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Heiðarlundur 1 E
Virkilega vel skipulögð og rúmgóð 5-6 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á afar vinsælum stað í Lundarhverfi. Eignin er samtals 142,6 fm með baðherbergi og snyrtingu, sér þvottahúsi og tveimur inngöngum. Pallur og svalir snúa til suðurs. Eignin skiptist í anddyri, samliggjandi stofu og borðstofu, eldhús, þvottahús, geymslu og snyrtingu á neðri hæð, sjónvarpshol sem hægt er að breyta í svefnherbergi og fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi á efri hæð.
**Búið að endurnýja þak**
**Búið að endurnýja glugga til suðurs**
**Eigandi sér um skipti á gluggum til norðurs ásamt nýrri útidyrahurð**Nánari lýsing:
Neðri hæð:Anddyri er með flísar á gólfi og opnu fatahengi
Borðstofa og stofa er í opnu, björtu og rúmgóðu rými með útgengt út á timburpall og garð sem snýr til suðurs.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu en búið er að skipta um fronta.
Þvottahús og geymsla inn af því er með flísar á gólfi, nýlegri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og þar er bakdyrainngangur.
Snyrting á neðri hæð er fyrir framan stiga, hún er rúmgóð með flísar bæði á gólfi og veggjum.
Stigi milli hæða er járnstigi með timburþrepum og stór gluggi er í stigauppgöngu sem veitir mikla birtu.
Efri hæð:Sjónvarpshol er opið rými með parket á gófli og þaðan er útgengt út á svalir til suðurs. Hægt er að loka rýminu með léttum vegg og útbúa fimmta herbergið á hæðinni.
Svefnherbergi eru annars fjögur og eru tvö þeirra með fataskápum. Úr einu þeirra er lúga upp á milliloft.
Baðherbergi er upprunalegt með flísar á gófli og dúk á veggjum að mestu. Þar er innrétting í kringum vask með ágætu skápaplássi, handklæðaofn, baðkar með sturtutækjum og gluggi.
Annað: -Þak endurnýjað í kringum 2010 (skipt um timbur og dúk og loftun bætt til muna)
-Skipt um glugga og svalahurðir á suðurhlið 2026
-Greitt hefur verið fyrir glugga og útidyrahurðir á norðurhlið
-Útigeymsla við aðalinngang undir stiga
-Innrétting í þvottahúsi ca. 5 ára gömul
-Hellulagt fyrir framan eign
-Frábær og vinsæl staðsetning, stutt í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði KA, verslun og ýmisskonar þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:bjorn@byggd.is
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955