Háborg fasteignasala og Jórunn, löggiltur fasteignasali, kynna með stolti í einkasölu Grænahlíð 16 105 Reykjavík, stórglæsilega 113,7 fm fjögurra til fimm herbergja íbúðahæð á efstu hæð. Sameiginlegur inngangur með 2. hæð Eigninni fylgir merkt stæði og hleðslustöð. Möguleiki á að setja 4. svefnherbergið á kostnað stofunar, en þar var herbergi á árum áður. Afhending samkomulag. Hér er um að ræða sérlega bjarta og smekklega íbúð á 3. hæð (efstu hæð). Hlíðahverfið er rótgróið og eftirsótt hverfi og Grænahlíð 16 er bakhús staðsett við grænt svæði, sem er opið grænt svæði með leikskóla, leikvelli og sparkvelli. Klambratún í göngufæri ásamt íþróttamannvirki. Einnig er grunnskóli í göngufæri og framhaldsskóli.Lykilupplýsingar- Stærð: 113,7 fm
- Herbergi: 3 (3 svefnherbergi + stofa, möguleiki á 4. svefnherberginu)
- Hæð: 3. hæð til vinstri (efsta hæð)
- Sameiginlegur: Já, af stigapalli
- Byggingarár: 1957
Lýsing eignarinnarKomið er inn í sameiginlegan gang. Þegar upp er komið er forstofa opin með góðum skáp og slá til að leggja frá sér. Þegar inn er komið er rúmgott hol, sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðarinnar. Úr holi er gengið inn í tvær stofur sem eru mjög rúmgóðar og bjartar með útgengt út á suður svalir. Eldhúsið sem hefur verið endurnýjað
Gengið er upp eina hæð á veglegan yfirbyggðan stigapall með háu og reisulegu þaki yfir stærstum hluta stigans. Sérinngangur er af stigapalli. Forstofan tekur vel á móti með góðum fataskápum og þaðan er gengið inn í alrýmið.
Alrými, eldhús og stofurAlrýmið er einstaklega glæsilegt með hallandi lofti og hámarkslofthæð sem nær allt að 4,16 metrum undir mæni, sem gefur rýminu mikla vídd og birtu. Harðparket er á öllum gólfum og flísar á votrýmum, en gólfefni íbúðarinnar voru endurnýjuð árið 2020.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2013. Komið var fyrir ljósri innréttingu með eyju. Stein borðplötur.
Stofur eru bjartar og rúmgóðar, með útgengt á suður svalir með sól allann daginn.
Svefnherbergi og baðherbergi:Þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsla liggja saman á gangi.
· Hjónaherbergi: með góðum fataskápum
· Barnaherbergi 1: bjart og rúmgott með skápum
· Barnaherbergi 2: bjart og með skápum
Baðherbergið var endurnýjað að hluta árið 20130 á smekklegan máta þar sem meðal annars voru settar nýjar flísar á golf. Einnig var sett vönduð innrétting með stein plötu á skáp með skúffum og handlaug og spegli með hliðarlýsingu. Inn á baðherberginu er þvottahús með innréttingu og góðri vinnuaðstöðu, sem einnig var endurnýjuð árið 2013.
Framkvæmdir og endurbætur:
Innanhúss - 2026 Skipt um glugga á suðurhlið (á kostnað seljanda)
- 2013 Baðherbergi og eldhús endurnýjað með steini á borðum og raflagnir yfirfarðar
- 2013 Þvottavél og þurrkaði komið fyrir í innréttingu á baði
- 2025 Íbúin máluð og hurðir sprautu lakkaðar
- 2025 Fataskápur í forstofu sprautu lakkaður
Hús og sameign:- 2013: Helmingur þaks dunnanvert frá mæni, var endurnýjaður
- 2013 Settar nýjar þakrennur
- 2020 Dren og skolplagnir endurnýjaðar
Geymslur og sameign:- Geymsla í kjallara birtir fm 1,2 fm (fleiri rúmmetrar)
- Sameiginlegt þvottahús í kjallara, sem þau nota ekki, aðstaða á baði innan íbúðar
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á lóð
- Lóð í óskiptri hlutfallslegri sameign
Bílastæði:Grófjöfnuð lóð í sameign við húsið. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni með rafhleðslustöð.
HúsiðMatshlutinn 01 sem stendur á steinsteyptum grunni er steinsteypt hús, skiptist í kjallara og þrjár hæðir. Á húsinu er tvíhalla þak sem hallar til norðurs og suðurs, suðurhlið þaksins er með miklum halla sem myndar útvegg þriðju hæðar að sunnanverðu. Í kjallara er ein íbúð og 4 geymslur sem tilheyra hverri séreign.
Lóðin sem er í óskiptri sameign er með tyrfðum flötum, með miklu og góðu rými fyrir börn að leik.
Húsfélag og rekstrarkostnaður:Í húsinu starfar virkt húsfélag, Grænahlíð 16, húsfélag, í umsjón Eignaumsjónar hf. Hússjóður íbúðarinnar er í skilum samkvæmt yfirlýsingu húsfélags dags. 12.07.26. Mánaðarleg gjöld eignarinnar eru samtals á mánuði 18.075-kr. Virkt húsfélag er starfandi með traustri fjárhagsstöðu.
Hverfið:Hlíðarnar er gróið hverfi og státar af fjölbreyttum skólastigum. Klambratún er eitt að kennileitum í Hlíðunum. Stutt í menningu, þjónustu og skemmtun. Úr Hlíðunum er stutt í stofnbrautir og í allar áttir.
Húsið stendur á grænu svæði fyrir aftan húsið eru leikskóli, leikvöllur, sparkvöllur og fallegt útivistarsvæði. Grunnskóli og framhaldsskóli eru í göngufæri.
Samantekt:Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða íbúðarhæð þar sem hugað hefur verið að endurbótum. Fjagra til fimm herbergja íbúðarhæð efstu hæð með gróðri sem teygir sig í átt að stofugluggum. . Eigninni fylgir sérmerkt stæði með hleðslustöð. Grænt svæði sunnan megin við húsið og eftirsótt staðsetning í Hlíðunum gera þessa eign að sérlega spennandi kosti fyrir barnafólk.
Frekari upplýsingar:
Allar nánari upplýsingar veitir Jórunn, löggiltur fasteignasali, í síma 845-8958 eða á jorunn@haborg.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.