Viltu kynnir vandaða og fallega 4ra herbergja íbúð við Gerplustræti 31 í Helgafellshverfinu í Mosfellsbæ. Björt eign með fallegt útsýni. Bílastæði í upphituðum bílakjallara.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum fyrir eignina.
Íbúðin sjálf er 88,3 m2 og á 3. hæð í lyftuhúsnæði. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi/þvottahús, eldhús og stofu. Fallegar innréttingar og gólfefni. Skjólgóðar svalir í vesturátt með fallegu útsýni.
Geymsla í sameign er skráð 8,1 m2 og bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir. Búið er að draga rafmagn í stæði og því hægt að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Nánari lýsing:
Forstofa: Frá svalagangi er gengið í góða forstofu með flísum á gólfi og innbyggðum rúmgóðum fataskáp.
Eldhús: Í opnu rými sem tengist við stofuna. Góð innrétting með eyju. Ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Í eyjunni er spanhelluborð og góður háfur yfir. Hægt er að sitja við eyjuna.
Stofa/Borðstofa: Eru samliggjandi í opnu og björtu rými með fallegu útsýni. Þaðan er gengið á rúmgóðar svalir til vesturs.
Herbergi 1: Bjart og rúmgott hjónaherbergi með stórum innbyggðum fataskáp.
Herbergi 2: Gott herbergi með tvöföldum fataskáp.
Herbergi 3: Gott herbergi með einföldum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og blautrými. "Labb-inn" sturta. Innbyggt upphengt salerni og handklæðaofn. Snyrtilegur vaskaskápur og góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Á 1. hæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Í kjallara er sérgeymsla, 8,1 m2.
Innréttingar og skápar eru frá Axis. Innihurðir eru yfirfelldar og hvítlakkaðar frá Axis.
Frábær staðsetning rétt við Helgafellsskóla sem er bæði leik- og grunnskóli. Stutt í strætóstoppistöð. Stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu































| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 4 | 96,40 m² | 76.900.000 kr. 28. maí 2026 | 44.900.000 kr. 2. ágúst 2018 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 28.05.2026 Nánar | 96,4 m² | 797.718 kr. | 76.900.000 kr. |
| 12.05.2026 Nánar | 96,4 m² | 808.091 kr. | 77.900.000 kr. |
| 07.05.2026 Nánar | 96,4 m² | 824.689 kr. | 79.500.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 2. ágúst 2018 | 44.900.000 kr. |
0202 | - | - | - | 47.900.000 kr. 11. maí 2020 |
0102 ![]() | 2 | 62,80 m² | 61.900.000 kr. 24. maí 2026 | 41.500.000 kr. 9. september 2021 |
0403 | - | - | - | - - |
0203 | - | - | - | 50.000.000 kr. 31. október 2018 |
0204 | - | - | - | 62.500.000 kr. 25. febrúar 2021 |
0402 | - | - | - | 92.000.000 kr. 18. júní 2018 |
0201 ![]() | 4 | 109,80 m² | 72.900.000 kr. 6. desember 2022 | 72.900.000 kr. 17. febrúar 2023 |
0404 | - | - | - | 57.900.000 kr. 17. desember 2018 |
0304 | - | - | - | 54.900.000 kr. 13. september 2018 |
0401 | - | - | - | - - |
0303 | - | - | - | 51.900.000 kr. 3. ágúst 2018 |
0101 ![]() | 4 | 145,00 m² | Tilboð 20. mars 2025 | 98.500.000 kr. 18. júlí 2025 |
0301 ![]() | 4 | 112,30 m² | 84.900.000 kr. 7. júní 2026 | 54.900.000 kr. 20. janúar 2021 |