Valhöll fasteignasala kynnir: Frostafold 6, 112 Reykjavík, bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á efstu hæð (6. hæð) í góðu fjölbýli í Grafarvogi. Þvottahús innan eignar. Gluggar í þrjár áttir með einstaklega fallegu útsýni.Íbúð merkt 601. Lyfta er í húsinu. Eigninni fylgir geymsla og sérmerkt bílas... Sýna meira
Valhöll fasteignasala kynnir: Frostafold 6, 112 Reykjavík, bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á efstu hæð (6. hæð) í góðu fjölbýli í Grafarvogi. Þvottahús innan eignar. Gluggar í þrjár áttir með einstaklega fallegu útsýni.Íbúð merkt 601. Lyfta er í húsinu. Eigninni fylgir geymsla og sérmerkt bílastæði. Birt stærð 90,4 fm. en raunstærð er um 96 fm þar sem geymsla telst ekki með í birtum fm fjölda.Eignin getur verið laus við kaupsamning.Frekari upplýsinga veita Sara Margrét Sigurðardóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 8220876 eða og Óskar fasteignasali / lögmaður. í síma 691-1931 eða Nánari lýsing:Innan íbúðar er forstofa, gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, þvottaherbergi, stofa/borðstofa. Íbúðin er bæði flísalögð og parketlögð að hluta.Forstofa: Gengið er inn í einstaklega stóra flísalagða forstofu með brúnum fataskáp. Vel hægt að nýta rýmið í meira en bara forstofu. Frá forstofu er síðan innangengt í önnur rými. Gangur: Frá forstofu, gangur er flísalagður og þaðan er innangengt í bæði svefnherbergi. Í enda gangsins er gólfsíður gluggi sem vísar til vesturs.Svefnherbergi 1: Stærra svefnherbergið er innst á ganginum. Gluggar snúa til norðurs, parketlagt, stór hvítur/spegla skápur.Svefnherbergi 2. Gluggar sem snúa til norðurs, Parketlagt.Baðherbergi: Bæði gólf og veggir flísalagðir. Baðkar í enda rýmisins með útdraganlegu sturtugleri. Brún viðarinnrétting, bæði efri og neðri skápar.Eldhús: í eldhúsinu eru innréttingar á tveimur veggjum, innréttingar hafa verið málaðar bláar, svartar flísar á milli efri og neðri skápa. Bakaraofn í vinnuhæð. Eldhúskrókur er í enda rýmisins, þar er einnig gluggi sem vísar til norðurs með fallegu útsýni. Frá eldhúsi er síðan innangengt inn í lítið þvottaherbergi.Þvottaherbergi: Gengið er inn í þvottaherbergið frá eldhúsi. Tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Flísalagt. Gluggi sem vísar til norðurs.Stofan/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með stóra glugga sem snúa til suð-austurs. Dimmer er á lýsingu. Þaðan er útgengt út á svalir.Svalir: Rúmgóðar 9,3 fm svalir. Geymslurými á báðum hliðum. Einstaklega fallegt útsýni.Geymsla: Rúmlega 5 fm. Telst ekki með í skráðum fm fjölda. Geymslan er í sameiginlegum kjallara hússins. Sér geymsla merkt númer 26, rúmgóð með glugga. Sameign er hin snyrtilegasta. Gangar teppalagðir. Sjálfvirk opnun á hurðum í sameign.Hjólageymsla er við geymslugang í kjallara, þaðan er útgengt beint út á plan. Ruslarenna er í húsinu fyrir almennt rusl en plast og pappi er flokkað í ruslageymslu.Ytra byrði hefur fengið gott viðhald en húsið var málað að utan fyrir um 5 árum. Hverfið. Stutt er í allar helstu þjónustur. Verslunarkjarninn í Hverafoldi er beint á móti húsinu. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, kaffihús, verslanir, sundlaug, íþróttamiðstöð o.fl.Fyrirhugað fasteignamat 2024 er 62.200.000 kr Nánari upplýsingar veitir:Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu Sara Margrét Sigurðardóttir/ aðstoðarmaður fasteignsala í síma 8220876 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.