Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali og Lind fasteignasala ehf kynna fallega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á 1.hæð í nýlegu fjölbýlishúsi við Hlíðarenda í Reykjavík sem notið hefur mikilla vinsælda. Mjög skemmtilegur og skjólsæll innigarður með leiktækjum.
Byggingarár 2019.
Eignin er skráð samkvæmt FMR 56,6fm.
Fasteignamat 2027 verður 58.650.000.-Nánari lýsing:
Forstofa: harðparket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: í opnu rými með stofu, hvít eldhúsinnrétting með tækjum, innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir eigninni.
Stofa: opið og bjart rými með gólfsíðum gluggum og útgengi út á franskar svalir.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi, gott skápapláss.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og vegg að hluta. Falleg innrétting, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: í Sameign 6,6 fm.
Nýtt harðparket frá Birgisson var lagt á íbúðina í lok árs 2024.
Nýjar terazzo flísar frá Birgisson voru lagðar á baðherbergi í feb 2025.
Frábært fyrstu kaup og góðir leigutekju möguleikar.Hlíðarendi er staðsettur mjög miðsvæðis í miðju stærsta atvinnusvæðis í Reykjavík með HÍ og HR ásamt atvinnusvæðinu í Vatnsmýrinni. Miðbærinn er í göngufæri og því þægilegt að fá sér stuttan göngutúr á veitingahús, söfn, tónleika, sundhöllina eða gefa öndunum á Tjörninni. Þá er Öskjuhlíðin og Nauhólsvík ekki langt undan. Glæsileg íþróttaaðstaða Vals er við hliðina á nýju byggðinni á Hlíðarenda, frábært fyrir börn og unglinga sem koma til með að búa í húsinu. Mjölnir er svo með aðstöðu í Öskjuhlíðinni þar sem áður var keiluhöll.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.Nánari upplýsingar veitir Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.