LIND fasteignasala kynnir bjarta og fallega tveggja til þriggja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) ásamt stæði í bílageymslu í mikið endurnýjuðu fjölbýli við Engjasel 86 í Reykjavík. Íbúðin er á tveimur hæðum, á aðalhæð er eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í risi er opið rými undi... Sýna meira
LIND fasteignasala kynnir bjarta og fallega tveggja til þriggja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) ásamt stæði í bílageymslu í mikið endurnýjuðu fjölbýli við Engjasel 86 í Reykjavík. Íbúðin er á tveimur hæðum, á aðalhæð er eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í risi er opið rými undir súð með tveimur þakgluggum. Eignin er skráð 91,2 fm hjá Þjóðskrá Íslands, aðalhæð íbúðar er 58 fm (gólfflötur 62,9 fm), risið er skráð 15,2 fm en gólfflötur er 29,1 fm. 5 fm geymsla í sameign. Athugið að bílastæði (13 fm) er skráð inn í fermetrafjölda. Gott geymslurými er innan íbúðar undir súð, bæði á aðalhæð og í risi. Góðar suðvestursvalir úr svefnherbergi. Glæsilegt útsýni yfir borgina og til sjávar. Húsið hefur verið mikið endurbætt á undanförnum árum, m.a. er búið að klæða húsið að utan, endurnýja þakjárn og rennur, svalir hafa verið endurbyggðar eftir þörfum og gluggar og gler endurnýjað eftir þörfum. Íbúð 402 (4HH): Forstofa/hol: Parket á gólfi. Eldhús: Parket á gólfi, hvít innrétting, grá borðplata.Stofa: Parket á gólfi, glæsilegt útsýni.Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. Útgengi á góðar suðvestursvalir, glæsilegt útsýni. Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hvítur skápur með handlaug, salerni, baðkar með sturtuaðstöðu.Þvottahús: Inn af baðherbergi, flísar á gólfi, borðplata.Geymsla: 5 fm sérgeymsla í sameign. Talsvert geymslurými er innan íbúðar undir súð í þvottahúsi, eldhúsi og í risi. Sérstæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni.Lóðin er snyrtileg og með leiktækjum. Hitalögn er undir hellum að húsinu.Allar nánari upplýsingar veitir:Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða Framkvæmdir undanfarið að sögn seljanda: ca. 2008-2010 Gaflar húss klæddir að utan2019 Fram- og afturhlið húss múrviðgerðar og klæddar að utan.2019 Svalir og svalahandrið endurbyggð eftir þörfum.2019 Gluggar og gler endurnýjuð eftir þörfum. Allir gluggar á aðalhæð íbúðar (að frátöldum þakgluggum) endurnýjaðir ásamt svalahurð. 2019 Rennur endurnýjaðar2016/17 Þakgluggi í eldhúsi endurnýjaður.2016 Járn á þaki endurnýjað.ca. 2005 Þakgluggar í risi endurnýjaðir.Rafmagnstafla í sameign hefur verið endurnýjuð. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6% 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.