Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum við Búðartanga 4 Hrísey. Eignin er skráð skv fmr 129,3fm. Húsið stendur á besta stað í eyjunni, beint í suður sem skapar einstök veðurskilyrði á veröndinni aftan við húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.isNánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu og þaðan er hægt að ganga inn á rúmgóða
snyrtingu með sturtu. Þegar úr forstofunni er komið er
þvottahús til vinstri handar og stórt
svefnherbergi beint af augum.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými. Eldhúsið er með vandaðri ALNO innréttingu. Úr eldhúsinu er hurð út á grillpall. Í stofunni eru gluggar á allar hliðar og svalahurð út á stóra verönd með dásamlegu sjávarútsýni.
Stór lóð er aftan við húsið, girt með hvítu grindverki með hliði bæði framan við húsið og aftan þar sem hægt er að ganga niður í fjöru. Á pallinum er nýr hitaveitupottur sem kveikt er á með sjálfvirkri stýringu í stóru geymslurými sem er fast við húsið.
Efri hæð: Á efri hæðinni eru tvö
svefnherbergi, hjónaherbergi og mjög stórt herbergi með þremur rúmum. Tveir kvistir í austur og vestur gera efri hæðina afar bjarta og opna, með útsýni til Grenivíkur og Dalvíkur. Sjávarmegin uppi er mjög stór
stofa þar sem nú er sófasett, leikherbergi og lítið skrifborð en er líka hægt að nota sem svefnrými. Úr glugganum á efri hæð er útsýni út á hafið og hægt að fylgjast með bátum og snekkjum sem sigla hjá og oft má sjá hnísur að leik.
Sjón er sögu ríkari! Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is