Miðborg fasteignasala kynnir í einkasölu BREIÐUMÖRK 11, Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr í hjarta bæjarins, steinsnar frá Matkránni. Um er að ræða íbúð á efri hæð, 85,5 m² og bílskúr 27,4 m² samtals 112,9 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Skipulag: ... Sýna meira
Miðborg fasteignasala kynnir í einkasölu BREIÐUMÖRK 11, Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr í hjarta bæjarins, steinsnar frá Matkránni. Um er að ræða íbúð á efri hæð, 85,5 m² og bílskúr 27,4 m² samtals 112,9 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Skipulag: forstofa, stigi, stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, hol, baðherbergi og svalir. Bílskúr.Nánari lýsing: Komið er um sérinngang á forstofu með flísum á gólfi, gólfhita og handklæðaofni. Teppalagður stigi á efri hæð. Lítil geymsla er undir stiga. Af stigapalli er gengið á baðherbergi og í hjónaherbergi. Á baðherbergi eru ný tæki, salerni, sturta og handlaug á fæti. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi, flísalagt gólf, Fiboplötur á veggjum og gólfhiti. Hjónaherbergi er rúmgott með fjórföldum fataskáp, harðparket á gólfi. Rúmgott hol, og af því er gengið í eldhús, svefnherbergi og stofu. Stofan er með harðparketi á gólfi, þaðan er útgengt út á suðursvalir u.þ.b. 8,4 m². Eldhúsið er með stálvask, eldavél, innbyggðri uppþvottavél og ísskápur fylgir. Barnaherbergin eru tvö, annað þeirra er með "steyptum" skápum sitt hvoru megin í herbergi, hitt herbergið er án fataskáps. Gólfhiti er í forstofu og baðherbergi.Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2021.- Nýtt harðparket frá Birgisson var lagt á hol, stofu, eldhús og svefnherbergi.- Nýtt teppi var lagt á stiga og stigapall.- Nýjar flísar á gólf baðherbergis og forstofu. - Dregið var nýtt í allt rafmagn sem þurfti og jarðsamand endurnýjað. - Allir rofar og tenglar eru nýjir úr 1930 línunni frá Bercker, Johan Rönning.- Skipt var um allar vatnslagnir og frárennslislagnir íbúðarinnar.- Allar innréttingar eru nýjar. Eldhúsinnrétting er ný, ný eldavél, ný innbyggð uppþvottavél, nýr vaskur og blöndurtæki.- Baðherbergi var allt endurnýjað, Burlington salerni og vaskur. Ný sturta.- Bílskúr með epoxy á gólfi. - Breiðamörk 11 er tveggja hæða hús með valmaþaki.- Ein íbúð er á neðri hæð og ein á efri hæð. Neðri hæð hússins er steypt en efri hæð er úr timbri. Bílskúr er hlaðinn úr steini með einhalla þaki, klætt með járni. Neðri hæðin er klædd með Steni.- Tvö bílastæði á lóðinni tilheyra eigninni, sérafnotaflötur fyrir framan bílskúr, ekið inn frá Breiðumörk og bílastæði til hægri við innkeyrslu frá Heiðmörk.- Garður er sameiginlegur, gróinn. Hellulagt er við inngang. Möl er í bílastæði frá Heiðmörk, malbikað er að bílskúr frá Breiðumörk. - Bílskúrinn er með epoxy á gólfi, inngönguhurð í bílskúr er við inngang íbúðar. Nýr rafdrifinn bílskurshurðaropnari verður settur upp fyrir afhendingu. Vel skipulögð íbúð, mikið endurnýjuð á efri hæð í miðbæ Hveragerðis. Stutt í alla helstu þjónustu. - Íbúðin er tilvalin fyrir þá sem vilja hreiðra um sig í friðsælu og afslöppuðu umhverfi rétt fyrir utan borgina. - Lóðarleigusamningur í gildi frá Hveragerðisbæ til 50 ára frá 17. maí 2018. Samkvæmt eignarskiptayfirlýsingu, skjal nr. 447-L-003496/2018. Eignin er íbúð (rými 0201). 81,3 m² á efri hæð, ásamt forstofu/gangi á fyrstu hæð (rými 0102) 4,2 m², bílskúr (rými 0103) 27,4 m² og svölum (rými0203).- Eignin er með sérinngang og henni fylgir í hlutdeild í sameign allra í matshlutanum, samkvæmt hlutfallstölu hennar í húsi og lóð, ásamt hlutdeild í hitakostnaði.Birt stærð séreignar í mhl: 01 112,9 m². Hlutfallstala í mhl 01 og lóð: 49,86%. Hlutfallstala í hita: 50,21%.Allar nánari upplýsingar veiti Björn Þorri Viktorsson hrl. og lfs. , eða í síma 894-7070.