Miðborg fasteignasala kynnir í einkasölu BREIÐUMÖRK 11, Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr í hjarta bæjarins, steinsnar frá Matkránni. Um er að ræða íbúð á efri hæð, 85,5 m² og bílskúr 27,4 m² samtals 112,9 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Skipulag: ... Sýna meira
Miðborg fasteignasala kynnir í einkasölu BREIÐUMÖRK 11, Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr í hjarta bæjarins, steinsnar frá Matkránni. Um er að ræða íbúð á efri hæð, 85,5 m² og bílskúr 27,4 m² samtals 112,9 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Skipulag: forstofa, stigi, stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, hol, baðherbergi og svalir. Bílskúr.Nánari lýsing: Komið er um sérinngang á forstofu með flísum á gólfi, gólfhita og handklæðaofni. Teppalagður stigi á efri hæð. Lítil geymsla er undir stiga. Af stigapalli er gengið á baðherbergi og í hjónaherbergi. Á baðherbergi eru ný tæki, salerni, sturta og handlaug á fæti. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi, flísalagt gólf, Fiboplötur á veggjum og gólfhiti. Hjónaherbergi er rúmgott með fjórföldum fataskáp, harðparket á gólfi. Rúmgott hol, og af því er gengið í eldhús, svefnherbergi og stofu. Stofan er með harðparketi á gólfi, þaðan er útgengt út á suðursvalir u.þ.b. 8,4 m². Eldhúsið er með stálvask, eldavél, innbyggðri uppþvottavél og ísskápur fylgir. Barnaherbergin eru tvö, annað þeirra er með "steyptum" skápum sitt hvoru megin í herbergi, hitt herbergið er án fataskáps. Gólfhiti er í forstofu og baðherbergi.Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2021. Nýtt harðparket frá Birgisson var lagt á hol, stofu, eldhús og svefnherbergi. Nýtt teppi var lagt á stiga og stigapall. Nýjar flísar á gólf baðherbergis og forstofu. Dregið var nýtt í allt rafmagn sem þurfti og jarðsamand endurnýjað. Allir rofar og tenglar eru nýjir úr 1930 línunni frá Bercker, Johan Rönning. Skipt var um allar vatnslagnir og frárennslislagnir íbúðarinnar. Allar innréttingar eru nýjar. Eldhúsinnrétting er ný, ný eldavél, ný innbyggð uppþvottavél, nýr vaskur og blöndurtæki. Baðherbergi var allt endurnýjað, Burlington salerni og vaskur. Ný sturta. Bílskúr með epoxy á gólfi. Breiðamörk 11 er tveggja hæða hús með valmaþaki. Ein íbúð er á neðri hæð og ein á efri hæð. Neðri hæð hússins er steypt en efri hæð er úr timbri. Bílskúr er hlaðinn úr steini með einhalla þaki, þak á bílskúr er klætt með járni. Neðri hæðin er klædd með Steni.Tvö bílastæði á lóðinni tilheyra eigninni, sérafnotaflötur fyrir framan bílskúr, ekið inn frá Breiðumörk og bílastæði til hægri við innkeyrslu frá Heiðmörk. Garður er sameiginlegur, gróinn. Hellulagt er við inngang. Möl er í bílastæði frá Heiðmörk, malbikað er að bílskúr frá Breiðumörk. Bílskúrinn er með epoxy á gólfi, inngönguhurð í bílskúr er við inngang íbúðar. Nýr rafdrifinn bílskurshurðaropnari verður settur upp fyrir afhendingu. Vel skipulögð íbúð, mikið endurnýjuð á efri hæð í miðbæ Hveragerðis. Stutt í alla helstu þjónustu. Íbúðin er tilvalin fyrir þá sem vilja hreiðra um sig í friðsælu og afslöppuðu umhverfi rétt fyrir utan borgina. Lóðarleigusamningur í gildi frá Hveragerðisbæ til 50 ára frá 17. maí 2018. Samkvæmt eignarskiptayfirlýsingu, skjal nr. 447-L-003496/2018. Eignin er íbúð (rými 0201). 81,3 m² á efri hæð, ásamt forstofu/gangi á fyrstu hæð (rými 0102) 4,2 m², bílskúr (rými 0103) 27,4 m² og svölum (rými0203). Eignin er með sérinngang. Eigninni fylgir í hlutdeild í sameign allra í matshlutanum, samkvæmt hlutfallstölu hennar í húsi og lóð. Ásamt hlutdeild í hitakostnaði.Birt stærð séreignar í mhl: 01 112,9 m². Hlutfallstala í mhl 01 og lóð: 49,86%. Hlutfallstala í hita: 50,21%.Allar nánari upplýsingar veiti Björn Þorri Viktorsson hrl. og lfs. , eða í síma 894-7070.