Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega, vel skipulagða og sjarmerandi 84fm, 3ja herbergja íbúð að Brávallagötu 20, 101 Reykjavík. Húsið er steinsteypt fjölbýlishús teiknað af Þorleifi Eyjólfssyni arkitekt. Í húsinu eru 3 íbúðir, ein á hverjum palli. Húsið stendur á eignarlóð og er sambyggt á göflunum húsunum á næstu lóðum til beggja hliða. Hlutdeild í lóð skiptist jafnt milli eignanna þriggja í húsinu Eignin skiptist í hol, eldhús, tvær rúmgóðar stofur (önnur stofa nýtt sem svefnherbergi), rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Í sameign er sameiginlegt þvottahús.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð á rólegum stað í "gamla vesturbænum" þaðan sem stutt er í skóla á öllum stigum, öll helsta verslun og þjónusta í göngufæri ásamt fjölbreyttri flóru af kaffi- og veitingastöðum svo eitthvað sé nefnt.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.isEignin Brávallagata 20 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-4261, birt stærð 84.0 fm, þar af er sérmerkt geymsla í kjallara merkt 0003 skráð 9.8fm.
Nánari lýsing:
Stigagangur: Ein íbúð á hverjum palli. Fatahengi með hillu og skóskáp. Íbúð nýtir stigagang á sinni hæð sem forstofu.
Hol: Komið inn í hol úr stigagangi. Úr holi er gengið inn í stofu, eldhús og svefnherbergi.
Eldhús: Ljós innrétting með eldavél og háf fyrir ofan ásamt eldhúsvaski. Aðstaða fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi:
Svefnherbergi:
Stofa I:
Stofa II / Svefnherbergi II:
Geymsla:Nánari lýsing: Parket er á gólfum í íbúðinni nema á baðherbergi sem er flísalagt. Gengið er inn um sameiginlegan inngang þriggja íbúða, ein íbúð á hverri hæð. Skóskápur og hengi á hæð tilheyrir íbúð. Komið er inn í hol og þaðan er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.