Borg fasteignasala 519-5500 kynnir til sölu 19 herbergja íbúðahótel á góðum stað í miðbæ Reykjavíkur.Húsnæðið er innréttað sem 19 herbergi ásamt veitingastað og aðskildri verslun á jarðhæð. íbúðirnar 19, allar vel innréttaðar með eldhúsaðstöðu og baðherbergi. Á jarðhæð er fallega innréttaður veitingastaður og gestamóttaka fyrir hótelið en inngangur er í hótelið á jarðhæð. Lyfta er í þessu rými. Á efri hæðum eru einnig lín og ræstikompur, ein á hvorri hæð. Jarðhæðin götumegin er tvískipt, veitingastaður og aðstaða fyrir hótelið hins vegar og annars vegar verslunarrýmið. Veitingastaðurinn og verslunarrýmið er í útleigu. Heildareigninn er til sölu ásamt rekstri á hótelinu og rekstrarfé þar. Húsið er byggt 2011-2012 steypt, þrjár hæðir og kjallari undir hluta af húsinu. Hótelið var mikið endurnýjað fyrir 2-3 árum.
Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is hjá BORG
fasteignasölu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði