Miklaborg og Jórunn lögg.fasteignasali kynna í einkasölu: Blönduhlíð 27 í þessu vinsæla hverfi Hlíðunum. Hæðin er efri hæð, með bílskúr að stærð 52,8 samtals stærð eignar 172,8 fm. Sérafnotaréttur á stæði fyrir framan bílskúr sem er vestanmegin við innkeyrslu. Hæðin skipar: forstofu, stigahús með út... Sýna meira
Miklaborg og Jórunn lögg.fasteignasali kynna í einkasölu: Blönduhlíð 27 í þessu vinsæla hverfi Hlíðunum. Hæðin er efri hæð, með bílskúr að stærð 52,8 samtals stærð eignar 172,8 fm. Sérafnotaréttur á stæði fyrir framan bílskúr sem er vestanmegin við innkeyrslu. Hæðin skipar: forstofu, stigahús með útgengt á svalir til vesturs, hol, eldhús sem er opið inn í stofu, stofur með útgengt út á suður svalir, hjónaherbergi með baðherbergi innaf, 2 nokkuð rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með glugga og góðri snyrtiaðstöðu. Geymsla í kjallara 6,8 fm. Ásamt sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Um er að ræða einstaklega fallega hæð í þessu eftirsótta hverfi í Hlíðunum, við Blönduhlíð (austanmegin við Lönguhlíð) í Reykjavík. Skólar, þjónusta og verslun í göngufæri ásamt íþróttamannvirki og listasafn.Húsið: Húsið er steinsteypt íbúðarhús, kjallari, tvær hæðir og ris sem er ósamþykkt. Húsinu fylgja tveir bílskúrar. Bílskúrin er steinsteyptur á einni hæð, bílskúrinn sem fylgir hæðinni er lengst til vesturs er matshluti 71 að stærð 52,8 fm. Bílskúrinn er fullbúinn með stórri innkeyrsluhurð, tveimur inngöngudyrum. Í bílskúr er allt sem í bílskúr þarf að vera, vatni, hita og rafmagni. Bílastæðið fyrir framan bílskúr, er í séreign hæðarinnar. Annars er lóðin í óskiptri sameign.Nánari lýsing: Glæsilegt hús þar sem vandað hefur verið til upphaflega, skapar fallega götumynd enn í dag. Steyptur stigi á stigapalli. Anddyri/hol með miklum skápum. Stórt hjónaherbergi með skápum og sér baðherbergi með sturtu. Tvo barnaherbergi rúmgóð annað með skápum. Flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og fallegri innréttingu við handlaug með spegli fyrir ofan. Eldhús er hluti af borðstofu. Eldhúsið er innréttað í L og opið inn í stofu. Breytingar voru gerðar árið 2007 að eldhúsið var fært innaf stofum og svefnherbergi gert þar sem eldhúsið var áður. því eru grunnteikningar ekki eins og fyrirkomulagið er í dag. Úr borðstofu er útgengt á suðursvalir. Stofan er stór og björt með gluggum í þrjár áttir. Sameign: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla með glugga. Húsfélag: Í húsinu er virkt húsfélag. Yfirstandandi framkvæmdir eru endurnýjun á skolp- og frárennslislögnum, en þann kostnað tekur seljandi á sig. Inneign í húsfélagi ca 3 milljónir sem verða nýttar uppí lagna framkvæmdir utanhúss. Einnig hefur verið samþykkt á aðalfundi húsfélags að mála stigahús á milli 2.hæðar og ris, sú framkvæmt hefur ekki verið ákveðin. Umgengni og endurbætur: Töluverðar endurbætur hafa átt sér stað á eigninni, lagður var gólfhiti í alla íbúðina, baðherbergi endurnýjuð, skápar, gólfefni Pergo parket, tölvustýrður gólfhiti settur. Einnig var húsið steinað ca. um 2003 og var þá gler yfirfarið. Net- og loftnetstenglar eru í öllum herbergjum. Þak hefur verið endurnýjað fyrir ári síðan. Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð. Nú er verið að endurnýja frárennslislagnir og dren, ásamt jarðvegsskipta innkeyrsluna inn í bílskúrinn og á lóð norðan megin, á kostnað seljanda. Um er að ræða mjög fjölskylduvæna hæð, sem er björt og falleg. Bílskúrinn sem fylgir býður uppá mikla möguleika, þar er frárennslisrör, hita, heitt/kalt vatn og rafmagn. Tvær göngudyr. Frábær staðsetning, í hlíðunum austan megin við Lönguhlíð. Hægt er að velja á milli einkarekinna- eða ríkisskóla. Einstakt að það eru öll menntastig innan hverfis. Einnig er íþróttamannvirki, börn þurfa ekki að fara yfir umferðargötu . Frábær aðstaða fyrir fjölskyldufólk. Stutt í náttúruna, falleg útivistarsvæði, í stofnbraut, verslun, listir og menningu. Nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn löggiltur fasteignasali í síma 845-8958 eða Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrstu kaup / 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar eru mismunandi eftir lánastofnunum frá kr 30 - 81 þúsund. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.