LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 4-5 herbergja 122 m2 íbúð á 3. og efstu hæð við Blöndubakka 20 sem er vel viðhaldið fjölbýli á þessum barnvæna stað í Bökkunum í Breiðholti. Útgengt er frá stofu út á svalir til suðurs. Útleiguher... Sýna meira
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 4-5 herbergja 122 m2 íbúð á 3. og efstu hæð við Blöndubakka 20 sem er vel viðhaldið fjölbýli á þessum barnvæna stað í Bökkunum í Breiðholti. Útgengt er frá stofu út á svalir til suðurs. Útleiguherbergi er í kjallara með fallegri eldhúsinnréttingu með eldunaraðstöðu og aðgengi að sameiginlegu baðherbergi. Eignin samanstendur af forstofuholi, eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi, gestasalerni ,3 svefnherbergjum og geymslu. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn á hæð 102,3 m2, geymsla 6,5 m2 auk 13,2 m2 íbúðarherbergis. Nánari lýsing:Forstofuhol með parketi á gólfi og innbyggðu fataherbergi með hillum.Eldhús með innréttingu með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa, ofn í vinnuhæð, helluborð með viftuháf yfir, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu og rúmgóðum borðkrók.Gestasnyrting með flísalögðu gólfi, hvítri innréttingu með spegli fyrir ofan , upphengt salerni.Stofa-borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir til suðurs.Svefnherbergisgangur er parketlagður.Hjónaherbergið er mjög rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi , annað með opnum nýlegum fataskáp og annað með eldri fataskáp með rennihurðum.Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu, falleg hvít innrétting , handklæðaofn og upphengt salerni. Þvottahús er innaf baðherbergi sem er flísalagt með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottaél og þurrkara í innréttingu.Geymsla í sameign með hillum og máluðu gólfi og glugga. Íbúðarherbergi með parketi á gólfi og fallegri hvítri innréttingu með ljúflokunum á skúffum, keramik helluborð með tveimur hellum, litlum ísskáp sem fylgir , einnig fylgir rúm, eldhúsborð og tveir stólar, fataskápur og náttborð. Íbúi í herbergi getur verið með þvottavél og þurrkara í sameiginlegu þvottahúsi. Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarið og m.a. múrviðgert og málað, svalir lagfærðar, skipt um glugga og gler sem þurfti , ásamt glugga- og glerskiptum í sameign.Á síðustu árum hefur verið skipt um teppi á stigagangi og hann málaður. Skipt um útihurð og dyrasíma. Sorpgeymsla máluð og skipt um rennu í geymslunni. Skipt um ljós, tengla og rofa í stigahúsi og ný ljós sett í kjallara.Hjólageymsla er í sameign, einnig er sameiginlegt þvottahús þar sem hver getur haft sínar vélar. Örstutt er í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Allar upplýsngar veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða