Landmark fasteignamiðlun, Júlíus Jóhannsson og Monika Hjálmtýsdóttir lögg. fasteignasalar kynna: Góða fjögurra til fimm herbergja 107,9 fm íbúð á 2. hæð við Blöndubakka 20 í Breiðholti. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni og í kjallara er fjórða herbergið, með aðgengi að salerni með sturtu, tilvalið e... Sýna meira
Landmark fasteignamiðlun, Júlíus Jóhannsson og Monika Hjálmtýsdóttir lögg. fasteignasalar kynna: Góða fjögurra til fimm herbergja 107,9 fm íbúð á 2. hæð við Blöndubakka 20 í Breiðholti. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni og í kjallara er fjórða herbergið, með aðgengi að salerni með sturtu, tilvalið er til úteigu. Það að auki fylgir sér geymsla í kjallara. Íbúðin stendur við enda í góðu fjölbýlishúsi sem fengið hefur gott viðhald undanfarin ár. Þak var endurnýjað 2022, gluggar og gler endurnýjað fyrir nokkrum árum og húsið málað og múrviðgert. Eignin er frábærlega vel staðsett í örstuttu göngufæri við grunnskóla, leikskóla og þjónustukjarna. Mjóddin er mjög nálægt með um afar fjölbreyttri þjónustu ásamt strætisvagnamiðstöð. Fljótlegt út á stofnbrautir.Íbúðin fæst afhent við undirritun kaupsamnings. Eignin skiptist í hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu með borðstofu, fatageymslu og þvottaherbergi innan íbúðar. Í kjallara er herbergi ásamt sér geymslu. Sameiginlegt salerni með sturtu í kjallara ásamt þvottaherbergi og hjólageymslu. Nánari lýsingHol er með parketi á gólfi. Fatageymsla innaf holi með fataslá, harðparket á gólfi. Þvottaherbergi innaf holi, með tengi fyrir þvottvél, áfastar hillur á vegg, flísar á gólfi. Eldhús er með viðar innréttingu á tveimur hliðum með ágætis skúffu og skápaplássi, flisar á milli, hvítur bakarofn, keramik helluborð, gufugleypir yfir og tengi fyrir ísskáp. Borðkrókur innst í eldhúsi undir glugga. Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð og þaðan er útgengi á svalir í suður. Svefnherbergi I er með harðparketi á gólfi. Svefnherbergi II er með harðparketi á gólfi. Svefnherbergi III, hjónaherbergi er með harðparketi á gólfi. Baðherbergi er flíslagt á gólfi og veggjum með salerni, handlaug, baðkari, vegghengdum skáp og vinnuborði.Birt stærð íbúðar er 89,2 fm (08-0202), geymslu/herbergi 12,9 fm (08-0002) og geymslu 5,8 fm (08-0004), alls 107,9 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands. Væntanlegt fasteignamat 2023 er 50.100.000 kr. Allar nánari upplýsingar veita:Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali sími 823-2800Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali sími 823-2600Veitum skuldbindingalaust verðmat á þinni eign Monika fasteignasali á facebook Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA