Björt og falleg hæð og ris í miðbænum, eign sem býður upp á mikla notkunarmöguleika. Eigninni fylgir 16,8 fm skúr, fallegur suðurgarður og ris, en í risi eru um 50 fermetrar ótaldir í stærð eignar.Falleg hæð og ris í þríbýli á rólegum stað í miðbænum. Komið er inn í hús um sameiginlegan inngang með miðhæð-inngangur að séreign er á miðhæð , gengið upp dúklagðan stiga, frá stigapalli er útgengi á svalir sem eru í suðvestur. Frá stigapalli er gengið inn í eldhús sem er í opnu rými ásamt stofu/borðstofu. Þar í miðið er kamína, þykkt eikarparkett á gólfi. Í þessu rými eru tveir stórir bogalaga gluggar sem setja sterkan svip á rýmið. Inn af stofu er svefnherbergi og á hæðinni er líka stórt baðhernergi með góðri sturtu og lítið rými þar inn af sem í dag nýtist sem geymsla, en þar er einnig möguleiki á að hafa þvottaaðstöðu. Risið er nokkuð opið, hátt til lofts í miðið og svo kvistir út frá miðju á hvorri hlið. Á kvistum erum tígullaga gluggar. Lítið salerni er á hæðinni og eins skot með borði og eldhúsvask. Samþykktir fermetrar í risi eru rúmlega 34 fm, en ósamþykktir um 50 fm, sem að gera nýtingarmöguleikana mun meiri. Auðvelt er að útbúa íbúð til útleigu eða útbúa hólfaðri rými fyrir herbergi í risi. Góður suðurgarður er í sameigin, innst garði er upphitaður 16,8 fm skúr, sem nýtist fyrir vinnuskúr eða geymslu. Fyrir um 15 árum var rafmagn tekið í gegn í íbúðinni, ný tafla sett upp, Berker raflagnaefni á tenglum. Nýjir ofnar og vatnslagnir settar upp á sama tíma. Þá var kamína einnig sett upp.
Húsið hefur fengið nokkuð gott viðhald, hús var tekið í gegn að utan fyrir um 8 árum síðan- en þá var farið í að skipta um suma glugga og viðgerð á öðrum. Hús pússað og málað, þak líka. Drenað var í kringum hús fyrir ca. 8 árum. Garður tekin í gegn fyrir ca. 3 árum- jarðvegsskipt, hellulagt, og ruslaskýli sett upp.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu







































| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 5 | 126,60 m² | 119.000.000 kr. 10. júlí 2026 | 25.000.000 kr. 18. ágúst 2009 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 10.07.2026 Nánar | 126,6 m² | 939.968 kr. | 119.000.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 18. ágúst 2009 | 25.000.000 kr. |
0101 | - | - | - | 58.000.000 kr. 29. maí 2018 |
0001 | - | - | - | 39.500.000 kr. 11. desember 2020 |












































