Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Glæsilega 104,3 fm, 3 herbergja íbúð á 2. hæð með bílskúr við Austurberg 12 í Reykjavík.Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 80,8 fm og sér geymsla í kjallara 5 fm, og bílskúrinn er 18,5 fm skv. HMS.
// Laus við kaupsamning.
// Frábær staðsetning
// Bílskúr.
// Stórar suðursvalir.Nánari lýsing:Aðkoma: Hellulögð stétt að inngangi í húsið. Snyrtilegur stigagangur með teppum upp að inngangi í íbúðina á 2. hæð.
Forstofa: Parket á gólfi. Rúmgóður fataskápur.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á góðar svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús: Flísar á gólfi. Falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi. Tveir ofnar. Helluborð.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og stórum fataskáp.
Barnaherbergi: Parket á gófli.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð sturta með glerþili. Upphengt salerni. Innrétting með handlaug. Gluggi er í rýminu.
Geymsla: Læst geymsla á jarðhæð sem er skráð 5 fm.
Bílskúr: Góður 18,5 fm bílskúr og er innkeyrsluhurð með inngönguhurð. Heitt og kalt vatn og rafmagn er í skúrnum sem getur nýst til alls konar starfsemi.
Lóð: Gróin og vel hirt lóð.
Íbúðin er vel staðsett í barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla mögulega þjónustu, verslunarmiðstöð, sundlaug, líkamsræktarstöð og bókasafn. Fjölbrautaskólinn, leik og grunnskóli í göngufæri.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.