Fasteignasalan Hvammur 466 1600 kaupa@kaupa.isTöluvert endurnýjuð 6 herbergja endaraðhúsaíbúð á tveimur hæðum við Akurgerði 7. Eignin er 149,7 m² að stærð og nýtist afar vel. Eignin skiptist þannig að aðalinngangur er á stigapalli á milli hæða, og á efri hæð er eldhús, stofa, tvö herberbergi og baðherbergi, og á neðri hæð er þrjú herbergi, eldhús, baðherbergi og þvottahús/geymsla.Forstofur eru tvær. Aðalinngangur er inn á stigapalla á milli hæða og þar eru flísar á gólfi. Annnar inngangur er inní þvottahús á neðri hæð.
Eldhús var endurnýjað árið 2021. Ljós innrétting með flísum á milli skápa og harðparketi á gólfi. Á neðri hæð er annað lítið eldhús sem notað var útleigu neðri hæðar.
Stofa er björt og með gluggum til suðurs og vesturs - opið er á milli eldhúss og stofu. Ljóst harðparket er á gólfum og útgangur á svalir til vesturs. Kamína er í stofunni.
Herbergin eru fimm talsins og öll frekar rúmgóð, tvö á efri hæð og þrjú á neðri hæð. Annað herbergjanna á efri hæð er innaf stofu og þar hefur hurðargatið verið stækkað og nýtist það sem sjónvarpsstofa í dag, en auðvelt að breyta því aftur í fyrra horf. Harðparket á gólfum herbergjanna að undanskildu eingu herbergi á neðri hæð hvar útgengt er á pall og að heitum potti - þar eru flísar.
Baðherbergi eru tvö, eitt á hvorri hæð. Baðherbergi á efri hæð var endurnýjað fyrr á þessu ári og þar er flísagt og með sturtu. Á baðherbergi á neðri hæð er eldra en er einnig flísalagt og með sturtu.
Þvottahús var allt endurnýjað fyrr á þessu ári og þar er ný ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og með góðu skápa- og geymsluplássi. Flísar eru á gólfum og útgangur til vesturs.
Geymslupláss. Geymsla er undir stiga á neðri hæð og einnig er ágætt geymslupláss í þvottahúsi. Í garðinum er svo góður geymsluskúr.
Garðurinn hefur verið tölvert tekinn í gegn. Útgangur er á svalir úr stofu til vesturs og þaða eru tröppur niður í garð. Einnig er útgengt úr einu herbergi neðri hæðar. Garður er hellulagður og þar heitur pottur, góðir skjólveggir og geymsluskúr. Framan við húsið er hellulögð verönd og malbikað plan.
Annað:- Útleigumöguleikar eru á neðri hæð, en þar er bæði eldhús og baðherbergi.
- Baðherbergi á efri hæð og þvottahús var endurnýjað 2026.
- Eldhús var endurnýjað 2021.
- Harðparket á stærstum hluta íbúðar endurnýjað 2021.
- Gler, póstar og opnanleg fög voru endurnýjuð 2024.
- Drenað hefur verið allt í kringum húsið á síðustu 20 árum og frárennslislagnir og inntök endurnýjuð.
- Hitalagnir eru í stétt við inngang.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Vel staðsett eign hvar stutt er í skóla, tómstundir og alla helstu þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.